English  Dansk
Forsíða

Höfuðborg Álfa og Lunda

Verðlisti 2012

Vor og haust kr. 35.715
Sumar kr. 37.720
Börn: 50% af flugverði
Ungabörn: 10% af ofangreindu

Innifalið:

 

Flug, Reykjavík - Egilsstaðir - Reykjavík
Leiðsögn

Hádegisverður og léttar veitingar

Aðgangur að söfnum
Flugvallaskattar

 

Tímabil

Sumar: 10. apríl - 10. okt.
   
Mánudaga til föstudaga  

 

Dagsferðin hefst á ökuferð til selalátursins í Húsey þar sem selir, fuglar og annað dýralíf er skoðað.
 
Bærinn býður einnig upp á einstakt tækifæri til að kynnast íslenska hestinum og hægt er að skella sér í stuttan útreiðartúr. Að lokinni áningu og hressingu heimsækjum við virkjunina við Lagarfoss.

Á leið okkar til Borgarfjarðar eystra njótum við stórbrotins og víðfeðms útsýnisins úr Vatnsskarði og skoðum líparítgljúfrið Hvannagil áður en snæddur er síðbúinn hádegisverður á veitingastað bæjarins. Þar gæðum við okkur á ýmsu lostæti sem heimamenn hafa upp á að bjóða til að safna orku fyrir stuttan göngutúr um þorpið Bakkagerði. Meðal markverðra staða þar má nefna hina frægu torfverbúð Lindarbakka og altaristöflu Jóhannesar Kjarval.  

Við skoðum fiskverkun staðarins og ljúkum ferðinni í Ævintýralandinu þar sem við hlýðum á þjóðsögur heimamanna og virðum fyrir okkur magnaða steina sem fundist hafa í nágrenninu. Áður en við yfirgefum þetta litríka svæði, sem er sannkölluð paradís jarðfræðingsins, heimsækjum við lundahólmann Hafnarhólma þar sem lundar halda sig til 15. ágúst.
 
Að loknu þessu 10 tíma ferðalagi förum við aftur á Egilsstaðaflugvöll þar sem við röbbum um viðburði dagsins meðan við bíðum eftir kvöldflugi Flugfélags Íslands aftur til Reykjavíkur.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára