English  Dansk
Forsíða

Ósnortin víðerni Eyjafjarðar

Verðlisti 2012

Vor og haust kr. 43.538
Sumar kr. 45.870
Vetur kr. 42.371
Börn: 50% af flugverði
Ungabörn: 10% af ofangreindu

Innifalið:

 

Flug, Reykjavík - Akureyri - Reykjavík
Ferð með leiðsögumanni

Inngangur inn á Síldarminjasafnið
Flugvallaskattar

 

Tímabil

Vetur

02. jan - 23. mars

28. okt - 31. des

Vor og haust:

24. mars. - 14. júní

21. ágúst - 27. okt

Sumar: 15. júní - 20. ágúst

Alla miðvikudaga.

Eftir stuttan akstur í gegnum gamla bæinn á Akureyri og heillandi miðbæinn ökum við sem leið liggur í gegnum frjósöm beitilönd Eyjafjarðar en hann er lengsti fjörður á Íslandi. Há fjöll og dalir sem ísaldarjöklar hafa mótað eru heillandi sjón. Á leiðinni förum komum við að hinum fræga sögustað Möðruvöllum og þar sjáum við dæmigerða sveitakirkju frá 19. öld. 

 

Lengra inn eftir firðinum sést Hrísey tilsýndar en þar er ríkulegt fuglalíf. Íbúafjöldi Hríseyjar er 200. Þrátt fyrir fjarlægðina á milli eru Akureyri og Hrísey sameinað sveitarfélag.

 

Eftir heillandi útsýni fjallanna sem afmarka Svarfaðardal komum við inn í Dalvík sem er lítið sjávarþorp (til gamans: Google skýrði sýndarvélina sína í stýrikerfi Android Dalvík) leiðir vegurinn okkur um tilkomumikið landslag í gegnum stutt einbreið göngin til Ólafsfjarðar sem er umluktur háum fjöllum.

 

Þaðan förum við í gegnum Héðinsfjarðargöng, en áður en þau voru opnuð var eingöngu hægt að komast til Héðinsfjarðar sjóleiðina eða yfir fjöll. Við stoppum stutt í dalnum til að fanga náttúrufegurðina í ljósmyndir áður en við höldum áfram í gegnum Héðinsfjarðargöng.

 

Síðan er haldið til Siglufjarðar sem var stærsti fiskvinnslustaður landsins á síldarárunum.

 

Á Síldarminjasafninu á Siglufirði fáum við innsýn í þennan tíma og upplifum andrúmsloft síldaráranna.

Þó að við ökum sömu leið til baka til Akureyrar upplifum við alveg nýtt sjónarhorn á landslagið og náttúruna.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára