Flug: Reykjavík - Akureyri - Reykjavík. Rúta: Akureyri - Húsavík - Akureyri (enginn fararstjóri) Akureyri - Mývatn með fararstjóra Mývatn - Akureyri enginn fararstjóri Flugvallarskattar
Hádegisverður eða léttar veitingar.
Daglega nema laugardaga. 18. júní - 31. Ágúst
Fyrsti hlekkurinn er ferð frá Akureyri til Mývatns með fararstjóra þar sem stansað er við hinn tilkomumikla Goðafoss, þaðan er haldið áfram til Skútustaða til að skoða gervigígana.
Senda fyrirspurn
Í Reykjahlíð er skipt um rútu og farið í rútuna til Kröflu - Dettifoss. Rúta þessi fer upp að Kröflufjalli að sprengigígnum Víti og á leiðinni er farið fram hjá brennisteins leirhverunum við Hveri. Þaðan liggur leiðin um stórar hraunsléttur að Dettifossi, mesta vatnsfalls Evrópu. Þar er farið upp í aðra rútu sem fer með þig í gegnum þjóðgarðinn og stansar við Hljóðakletta og Ásbyrgi, sem er skeifumyndað í laginu, áður en komið er út úr þjóðgarðinum. Á bakaleiðinni til Akureyrar stönsum við í stuttan tíma á Húsavík sem er rómuð höfuðborg hvalaskoðunar á Íslandi.