English  Dansk
Forsíða

Ilulissat í júní

Verð á mann

Tveggja manna herbergi 179.000 kr.

Aukakostnaður á einbýli er 22.000. kr.

 

Þátttöku ber að tilkynna fyrir 1. maí.

Full greiðsla með greiðslukorti fyrir 17 maí.

 

Bókanir í síma 570 3075

 

Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson , símanúmer 564-3606 898-9775, netfangemil@simnet.is, heimasíða www.simnet.is/emil

Ævintýraferð til Ilulissat (Jakobshavn) í júní

 

Illulissat er þriðja stærsta byggðarlagið í Grænlandi með 4.500 íbúum. Bærinn er á miðri vesturströnd landsins, um 200 km norðan við norðurheimskautsbaug. Illulissat þýðir ísfjallið. Grænlands-danski
heimskautafarinn Knud Rassmusen fæddist og ólst þar upp. Jakob Severin ásamt Paul Egede stofnuðu trúboðstöð þar og nefndu Jakobshavn. Illulissat er við Diskoflóann. Á sumrin getur hitinn verið frá 20-25°c. Norrænir menn komu þar í veiðiferðir frá vesturströndinni (eystri og vestribyggð) og nefndu norðursetur. Ísfjörðurinn skilar af sér mesta jökulruðningi á norðurhveli jarðar.
Isjakarnir eru allt að 1000 m háir og standa um 150 m upp úr hafinu. I

llulissat ísfjörðurinn var tilnefndur á Heimsminjaskrá UNESCO árið 2004.

 

 

Dagur 1, laugardagur 23. júní.

Flogið er frá Reykjavíkurflugvelli kl 11:15 með Dash flugvél Flugfélags Íslands, lent í Illulisat kl 12:30. Ekið frá flugvelli ( 5 km) á Hotel Arctic, sem er án efa besta 4ra stjörnu hótel á Grænlandi, gist er í tveggjamanna herbergjum. Eftir innritun er upplýsingafundur hjá dönsku ferðaskrifstofunni Arctic Adventure síðan er bærinn skoðaður með dönskum leiðsögumanni. Saga staðarins verður sögð,
heimssóttur elsti hluta bæjarins þar sem danska verslunin byrjaði, höfnina og gömlu kirkjuna o.fl.. Kvöldverður á hótelinu.

 

Dagur 2, sunnudagur 24 .júní.

Morgunverður. Sigling um ísfjörðinn. Siglt er milli himinhárra ísjökla, en Eqip jökullinn gengur fram í fjörðinn og brotnar með miklum látum í firðinum.
Boðið er upp á hressingu um borð í bátnum. Þegar í land komið er dagurinn frjáls.
Vel þess virði að fara í kirkju en þar er oft eitthvað um að vera (skírn, gifting, ferming t.d.).Dagurinn frjáls þegar við komum í land. 

Kvöldverður á hótelinu.

 

Dagur 3, mánudagur 25. júní.

Morgunverður. Dagurinn er frjáls en hægt að kaupa ýmsar ferðir hjá ferðaskrifstofunni sem sér um okkur, Arctic-adventure en þeir bjóða okkur sérverð á hinum ýmsu ferðum, eða einfaldlega skoða sig um á eigin vegum.
Kvöldverðurinn er á eigin vegum og upplagt að reyna einhvern veitingastað í bænum.

 

Dagur 4, þriðjudagur 26.júní.

Morgunverður.

Ekið út á flugvöll um hádegisbil en brottför er kl 13:30 og komið til Reykjavikur kl 18:45.

 

Kostnaður á mann er 177.900.- kr miðað við tveggjamanna herbergi, aukakostnaður á einbýli er 22.000.-kr . Þátttöku ber að tilkynna fyrir 1 maí.
Full greiðsla með greiðslukorti fyrir 17 maí, hringja skal í númer 570 3075, hópadeild Flugfélags Íslands og gefa upp greiðslukortanúmer. Innifalið er flug fram og tilbaka, flutningur til og frá flugvelli, morgunverðir, tveir kvöldverðir, gönguferð um Illulissat, sigling um ísfjörðin, íslensk og dönsk fararstjórn.

 

Hámarks þátttaka er 24.


Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson, símanúmer 564-3606 og 898-9776,
Netfang emil@simnet.is, heimasíða www.simnet.is/emil
Vefsíður til upplýsinga: www.arctic-hotel.gl

www.arctic-adventure.dk

 

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára