English  Dansk
Forsíða

Ísafjörður

Tilboð

Vestfirðir

Á Ísafirði við Djúp er mikil náttúrufegurð og tilvalið fyrir þá sem hafa yndi af útiveru og stórbrotnu landslagi að heimsækja þessar slóðir.

 

Senda fyrirspurn

 

 

 

Gönguleiðir fyrir fróðleiksfúsa

Gönguleiðir vísa fróðleiksþyrstum ferðalöngum á eyðibýli og á merka sögustaði bæði mennska og ómennska. En í stórfenglegum fjöllum hljóta að búa tröll og forynjur, og álfasteina og huldubyggðir er þar líka að finna.

 


Verbúðarlíf fyrr á öldum

Við ströndina ólgar hafið, órjúfanlegur þáttur í daglegu lífi Íslendinga. Í endurgerðri gamalli verbúð, Ósvör við Bolungarvík, má sjá við hvernig verbúðarlíf íslenskra sjómanna var á dimmum og köldum vetrarvertíðardögum.

 


Menning og mannlíf

Ísfirðingum hefur tekist að skapa vinalegt samfélag og einstakan menningarheim í bæ sínum og alls ekki ólíklegt að ferðalangar sem komnir er til að kanna mannlíf og menningu lendi á Nikkuballi í Neðstakaupstað.

 


Dagur við Djúp

Margir bæjarbúar hafa mikinn áhuga á pólitík enda hafa Ísfirðingar lengi vel gegt lykilhlutverki í þjóðmálaumræðu Íslendinga. Í innanbæjarkosningum eru margir listar í boði, svo fjölbreytni er þar mikil í mannlífi.

 

Það geta allir sannreynt með því að eiga ógleymanlega daga við Djúp.

Allar upplýsingar um upplyftingu fyrir eldriborgara er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is