English  Dansk
Forsíða

Reykjavík

Reykjavík

 

Gefðu ímyndunaraflinu lausann tauminn, og skiptu um umhverfi. Lyftu þér upp í heimsborginni Reykjavík og bjóddu einhverjum skemmtilegum með. Í höfuðborginni ætti engum að leiðast. Af nógu er að taka, á öllum sviðum.

 

 

Senda fyrirspurn

 

 

 

Menning og listir

Komdu til Reykjavíkur og finndu menningarviðburði sem hæfa þér, uppákomur listamanna á heimsmælikvarða, söfn af hvers kyns tegund sem reglulega skipta út sýningum sínum, stundaðu útivist og íþróttir, eða farðu bara í verslunarferð með gamla sniðinu. Allt þetta er hægt að gera í höfuðborginni, nú eða komdu bara og njóttu mannlífsins sem er síbreytilegt og fjölbreytt.

 

Fyrir matgæðinga

Gististaðir eru til af öllum stærðum og gerðum í öllum verðflokkum. Njóttu svo kvöldsins á einhverjum af þeim ótalfínu veitingastöðum. Það er nánast sama hversu oft þú kemur til borgarinnar, það er nánast öruggt að það var einmitt í þeirri viku verið að opna eitthvað nýtt!

Borgin hefur svo margar hliðar að engin leið er að kanna þær allar í einni ferð. Veldu brot af því besta sem í boði er og njóttu Reykjavíkur.

 

Upplyfting fyrir eldri borgara allan ársins hring

Flugfélag Íslands býður upplyftingu fyrir eldri borgara allan ársins hring, pakkaferðir með flugi og fyrsta flokks gistingu ásamt morgunverði á frábæru verði til Reykjavíkur. Gerum einnig tilboð í flug eingöngu.

Hópferð gefur kostur á margs konar upplifun á hverjum stað  t.d. fara í spennandi óvissuferð og njóta útivistar og líkamlegrar endurnæringar í fögru umhverfi.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúa hópadeildar í síma 570-3075 eða með því að senda póst á netfangið hopadeild@flugfelag.is