English  Dansk
Forsíða

Suður Grænland í júlí

Verð á mann:

Tveggja manna herbergi 178.200 kr.

Aukagjald eins manns herbergi er kr. 20.900.

 

Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson, símar 564-3606 og 898-9776.

Netfang emil@simnet.is ,  heimasíða www.simnet.is/emil

Ferð um fornar byggðir norrænna manna í
Suður-Grænlandi (Eystribyggð) sumarið 2012

 

 

Boðið er upp á fjögurra daga ferð 7.- 10. júlí  og 14. - 17. júlí nk. til að kynnast stórkostlegu náttúrufari, íbúum og menningu Suður-Grænlands að fornu og nýju.

Siglt verður innan fjarða milli staða á tveimur ágætum, hraðfara  skipum sem hvort um sig tekur 12 farþega. Sannkallaðar útsýnissiglingar!  Tíminn er knappur og því nýttur til hins ítrasta, en þó er lögð áhersla á að ferðin verði engum þátttakanda líkamlega ofviða.  Íslenskur og danskur fararstjóri.

 

1. dagur - laugardagur

Brottför frá Reykjavíkurflugvelli kl 13:45 með Fokker 50 flugvél frá Flugfélagi
Íslands og lent á flugvellinum í Narsarsuaq við Eiríksfjörð í Suður-Grænlandi kl
14:45 að staðartíma. Farþegum ekið að höfninni þar sem bátarnir bíða. Siglt verður
um Qooroq (Ísafjörð) milli tígulegra ísjaka sem eru nýfallnir úr jaðri
Grænlandsjökuls. Ferðin þennan dag er heitið til Garða (Igaliku) við Eiríksfjörð, en
þar gistum við fyrstu nóttina í sumarhúsum og Garða hótel. Bátnum er lagt við
bryggju við bóndabýlið Itivdleq, farangri er ekið á gististaðinn. Tæplega einnar stunda ganga eftir "Konungsveginum" til
Garða. Þeir sem þess óska geta fengið far með bíl.
Kvöldverður.

 

 

2. dagur - sunnudagur

Morgunverður.

Í Görðum var áður þingstaður og dómkirkja norrænna manna og helsta menningarmiðstöð þeirra.

Þar eru miklar mannvistaleifar frá þeim tíma. Nú búa í Görðum um 60 manns. Hádegisverður.
Brottför til Hvalseyjar , sem er utanlega við Eiriksfjörð .Þar stendur ein best
varðveitta miðaldarkirkja á norðurslóð, Hvalseyjarkirkja og miklar rústir af einum stærsta bæ norrænu byggðarinnar.
Farið í land og dvalið þar dágóða stund. Síðan er siglt til Qaqortoq (Julianehåb), sem er tiltölulega skammt frá Hvalsey og er stærsti bær í Suður-Grænlandi með um 3.500 íbúa Þar er dvalist á 4* Hotel Qaqortoq.
Kvöldverður.

 

3. dagur - mánudagur

Morgunverður. Bærinn skoðaður, síðan er hádegisverður og af honum loknum er siglt
til Narsarsuaq. Gist á Hótel Narsarsuaq, kvöldverður, "grænlenskt hlaðborð",
grænlenskur og danskur matur.

 

 

4. dagur - þriðjudagur

Morgunverður.
Morgunsigling þvert yfir Eiriksfjörð til Brattahliðar (Qassiarsuk), sem tekur aðeins um 15 mínútur. Þar bjuggu m.a. Eiríkur rauði, Þjóðhildur kona hans, Leifur heppni og fleiri afkomendur þeirra hjóna. Í Brattahlíð var annar miðpunktur hinnar fornu byggðar. Þar búa nú um 50 manns.
Skoðaðar verða hinar ríkulegu mannvistarminjar á staðnum, m.a. rústir af bæ Eiriks rauða og Þjóðhildarkirkja, tilgátubær og bænahús sem voru byggð í sem næst upprunalegri gerð árið 2000.
Siglt tilbaka til Narsarsuaq. Hádegisverður á hótelinu.
Loks er ekið á flugvöll og brottför til Reykjavikur er kl 15:45, komutími í Reykjavik
kl 20:45 að staðartíma.

 

 

Kostnaður á mann er kr. 178.200 miðað við tveggja manna herbergi.

Viðbótarkostnaður fyrir einbýli er kr. 20.900.

 

Innifalið er flug fram og til baka Reykjavík - Narssarsuaq - Reykjavík, bátsferðir, gisting, matur, akstur og leiðsögn.  Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 15. apríl.

 

Hhámarksfjöldi þátttakenda er 24.

Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 1. maí.

Full greiðsla með greiðslukorti fyrir 11. maí..

Hringja skal í númer 570-3075 - Hópadeild Flugfélags Íslands og gefa upp greiðslukortanúmer.

 

Upplýsingar gefur Emil Guðmundssyni, símar 564-3606 og 898-9776, netfang emil@simnet.is og heimasíða www.simnet.is/emil og Hópadeild Flugfélags Íslands.

 

 

Hér eru nokkrar bækur sem fróðlegt er að lesa um Grænland.

Brúðkaupið í Hvalsey- Anna Dóra Antonsdóttir
Frá Grænlandi - Sigurður Breiðfjörð
Grænlendingasaga- Islendingasagnaútgáfan
Hrafninn- Vilborg Davíðsdóttir
Land under leidarstjernen -Helge Instad
Landnámabók - Islendingasagnaútgáfan
Milli Grænlands köldu kletta - Jóhann Briem
Min förste Ishavsferd - Fridjov Nansen
The Viking Discovery of America - Anna Yates
Turen Går til Grönland- Politikens Rejseböger
Vinlandspunktar- Halldór Laxness
Islendingabók - Islendingasagnaútgáfan
Granni í vestri - Ási í Bæ

Auðvitað er hafsjór af upplýsingum, annar en þessi, gangi ykkur vel að kynna ykkur Grænland, þar til næsta ferð hefst.

 

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára