Börn undir 5 ára aldri mega undir engum kringumstæðum ferðast án forráðaraðila.
Farþegar sem ferðast með ungbörn (0-2 ára) sitja með þau í fanginu, með belti sem þeir fá afhent í byrjun flugs.
Sérstakar reglur gilda þegar börn 5-12 ára ferðast ein með Flugfélaginu.
Mikilvægt er að forráðamaður mæti tímanlega í innritun til að barnið geti fengið sæti aftarlega í vélinni sem næst flugfreyju. Einnig þurfa forráðamenn að fylla út þar til gert eyðublað fyrir börn 5-12 ára sem ferðast ein. Eyðublaðið er hægt að nálgast við innritun
Barnshafandi konur sem komnar eru 8 mánuði á leið eða lengra sem og þær sem fætt hafa barn fyrir tímann, geta einungis ferðast með okkur hafi þær lagt fram læknisvottorð, gefið út innan 72 klukkustunda fyrir brottför, þar sem staðfest er að þeim stafi engin hætta af fluginu.
Barnshafandi konur mega undir engum kringumstæðum fljúga tvær síðustu vikur meðgöngunnar
Farþegum sem ferðast með ungabörn er heimilt að hafa samþykkta barnabílstóla með sér um borð, að því gefnu að sæti séu laus í viðkomandi flugi.
Farþegar geta tryggt sér sæti fyrir barnabílstól með því að kaupa barnafargjald en þau sæti eru einungis bókanleg símleiðis eða í farþegaþjónustunni á viðkomandi flugstöð.
Farþegar eru beðnir um að mæta tímanlega fyrir flug.
Notkun barnabílstóla er heimil á öllum stigum flugferðarinnar, þar á meðal við flugtak og lendingu, að því gefnu að þeir séu hannaðir og samþykktir í samræmi við a.m.k eitt af eftirtöldu:
Flugfélagið getur því miður ekki útvegað barnabílstóla.