English  Dansk
Forsíða

Hrávara frá Grænlandi

 

Hér undir eru punktar varðandi innflutning á hráu kjöti til Íslands. Gott er að taka tillit til þessa þegar veiðiferð til Grænlands er skipulögð.

 

  • Við komu til landsins tekur Tollgæslan kjöt/fisk í sína gæslu úr flugi frá Grænlandi. Leyfi hljóða yfirleitt uppá 3 kg, allt umfram 3 kg þarf að tollafgreiða sérstaklega. Veiðimaður/farþegi þarf sjálfur að sjá um tollafgreiðslu á sínu kjöti/fiski.
  • Tollgæslan geymir hrávöruna í frysti Flugfélags Íslands.
  • Ferðamanninum er afhent farmskrá frá Tollgæslunni sem notuð er til að skrá hrávöruna inn til tolls.
  • Best væri svo að hafa samband við einhvern af tollmiðlurum landsins til dæmis TVG ZIMSEN, Jónar Transport eða Miðlun í Keflavík til þess að tollafgreiða kjötið/fiskinn.
  • Í flestum tilvikum þarf að greiða toll af kjötinu/fisknum.


Þegar það er frágengið fær veiðimaður/farþegi afhenta tollafgreiðsluheimild hjá tollmiðlaranum sem nauðsynlegt er að hafa til þess að fá kjötið/fiskinn afhent hjá Flugfélagi Íslands.


Engin hrávara er afhent út úr húsi án tollafgreiðsluheimildar.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára