English  Dansk
Forsíða

Reglur varðandi skotvopn

 

Heimilt er að ferðast með skotvopn og skotfæri í innrituðum farangri með eftirfarandi skilyrðum:

  • Skotvopn skal vera óhlaðið.
  • Engin skotfæri mega vera í sömu tösku og skotvopnið.
  • Ekki er leyfilegt að hafa meira en 5 kg af skotfærum með í för.
  • Ekki er leyfilegt undir neinum kringumstæðum að ferðast með skotvopn í handfarangri.
  • Skotfærin skulu vera pökkuð í umbúðir þar sem ytra byrðið er úr tré, áli eða trefjaplasti. Innra byrðið skal vera höggþétt og geta varið fyrir óvæntum hreyfingum og gengið svo frá að skotfærin geti ekki skapað hættu vegna óhappa í flutningi.

 

Við innritun skal framvísa skotvopninu og mun starfsmaður Flugfélags Íslands skoða og staðfesta að fyrrgreindum skilyrðum sé fylgt. Farþegi þarf að fylla út sérstakt eyðublað varðandi flutning á skotvopnum og skotfærum í farangri.


Þegar ferðast er með skotvopn í millilandaflugi þarf farþegi að framvísa skotvopnaleyfi og serstöku leyfi til útflutnings. Þessu þarf farþegi að framvísa við innritun og við tollskoðun.

 

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára