English  Dansk
Forsíða

Takmarkanir á farangri

 

Eftirfarandi er ekki heimilt að taka með sér í handfarangri:


A) Byssur, skotvopn og vopn.

Sérhver hlutur sem skot getur eða virðist geta hlaupið úr eða sem getur eða virðist geta valdið skaða, þ.m.t.: Öll skotvopn (skammbyssur, rifflar, haglabyssur o.s.frv.), Eftirlíkingar eða stælingar skotvopna, Íhlutur skotvopna (undanskilin er sjónaukamið og önnur mið), Loftbyssur, -rifflar og -haglabyssur, Merkibyssur,rásbyssur, leikjabyssur af öllum gerðum. Kúlubyssur (ball bearing guns), Bolta- og naglabyssur til nota í íðnaði, Krossbogar, teygjubyssur og slöngvur, skutl- eða spjótbyssur, rafmagnsvopn af öllum gerðum, einnig í byssulíki (taser), kveikjarar í byssulíki.

 

B) Oddvöss eða beitt vopn og hlutir.

Oddhvassir eða beittir hlutir sem geta valdið skaða, þ.m.t: Axir, krókar, mannbroddar, örvar og kastpílur, skutlar og spjót, Ísaxir og stingar, skauta, láshnífar eða fjaðurhnífar, óháð lengd blads, Hnífar (úr malmi, eða öðru efni sem er nógu stift til að hægt sé að nota það sem hugsanlegt vopn, einnig hnífar sem eru notaðir við siða- og truarathanfir), kjötaxir, Sveðjur, rakhnífar og rakblöð, höggsverð, sverð og korðar, skurðhnífar, Skæri með lengra en ca.6 cm blað, Skiða- og göngustafir, kaststjörnur, verkfæri iðnanaðrmanna sem hugsanlega má nota sem oddhvasst eða beitt vopn, t.d.borvélar, lausir borar, pappahnífar, hnífar til atvinnu, Allar sagir, skrúfujárn, kúbein, hamrar, tangir, skiptilyklar/skrúfulyklar og blússlampar.

 

C) Bitlaus áhöld og tól.

Bitlaus áhöld sem geta valdið skaða, þ.m.t: Hafnaboltakylfur, kylfur og stafir af öllum gerðum, stífir eða sveigjanlegir, Krikketkylfur, golfkylfur. Ísknalleikskylfur, balar ( "Lacrosse- kylfur), kajak- og kanóárar, Hjólabretti, kjuðar fyrir ballskák, veistangir, búnaður fyrir sjálfsvarnaríþróttir, svo sem Hnúararn, rotkylfur og aðrar kylfur, þreskijárn o.s.frv.

 

 

Eftirfarandi er ekki heimilt að taka með sér í farangri (hvorki innrituðum né handfarangri):


D) Sprengiefni og eldfim efni.

Sérhver sprengiefni eða eldfím efni sem eru hættuleg heilsu farþega og áhafnar eða vernd/öryggi loftfars eða eigna, þ.m.t.: Skotfæri, sprengihettur, hvelhettur og sprengiþræðir, sprengiefni og sprengibúnaður, Jarðsprengjur og aðrar sprengifimar hernadarbirgðir, handsprengjur af öllum gerðum, Gas og gaskútar td. bútan, própan, kolvetnisgas og súrefni - í stórum umbúðum, Skoteldar, blys af öllum gerðum og annar skotelda- og hvellbúnaður, þ.m.t., Samkvæmis- og leikjasprengjur, eldspýtur, aðrar en venjulegar, reykhylki og reykdósir, Fljótandi eldsneyti, t.d. bensín, díselolía, kveikjaralögur, alkóhól og etanól, Málning í úðabrúsum, terpentína og þynnir, áfengir drykkir með meira en 70% Vínanda miðað við rúmmál.


E) Íðefni og eiturefni.

Öll íðefni og eiturefni sem eru hættuleg heilsu farþega og áhafnar eða flugvernd/öryggi loftfars eða eigna, þ.m.t.: Sýrur og lútarefni, t.d. vökvafylltar rafhlöður, tærandi og bleikiefni t.d. kvikasilfur og klór, lamandi úðaefni, t.d. úðavopn (Mace), piparúði og táragas, geislavirk efni, þ.m.t. samsætur (ísótópar) til afnota við lækningar og sem verslunarvara, eitur, smitefni eða hættuleg lífefni, t.d. smitað blóð, bakteríur og veirur, sjálfsíkveikjandi og eldfim efni og slökkvitæki.

 

Athugið sérstakar reglur varðandi skotvopn og skotfæri í innrituðum farangri.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára