English  Dansk
Forsíða

Skilmálar fargjalda Flugfélags Íslands


Allar breytingar eða afbókanir þarf að gera fyrir brottför.

 

Ef farþegi mætir ekki og breytir ekki farmiða sínum fyrir brottför telst farið fullnýtt og er undir engum kringumstæðum endurgreitt.

 

Til þess að breyta, afbóka eða fá upplýsingar um bókun er nauðsynlegt að hafa bókunarnúmer. Vegna reglna um persónuvernd er ekki nóg að gefa upp nafn farþega eða kennitölu.

 

Sjá reglur um fargjöld hér að neðan.

 

Forgangssæti (MPRIOR)

  • Veitir 500 vildarpunkta per legg á flugum innanlands.
  • Greitt við bókun.
  • Bókunargjald í símsölu ISK 1.200.
  • Ekkert breytingargjald.
  • Endurgreitt að fullu fram að brottför.
  • Farangursheimild 20 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

 

Forgangssæti greidd með Flugkorti (CPRIOR)

  • Veitir 500 vildarpunkta per legg á flugum innanlands.
  • Bókunargjald í símsölu ISK 1.200.
  • Ekkert breytingargjald.
  • Endurgreitt að fullu fram að brottför.
  • Farangursheimild 30 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

 

Ferðasæti (BVALUE)

  • Veitir ekki vildarpunkta.
  • Greitt við bókun.
  • Bókunargjald í símsölu ISK 1.200.
  • Má breyta í sama fargjald eða dýrara.
  • Breytingargjald per fluglegg ISK 1.500 innanlands eða ISK 4.000 í millilandaflugi. Einnig þarf að greiða fargjaldamismun ef einungis er laust á dýrara fargjaldi.
  • Endurgreitt að fullu, fram að brottför, að frádregnum ISK 1.500 innanlands eða ISK 4.000 í millilandaflugi per fluglegg.
  • Takmarkaður sætafjöldi á þessu fargjaldi.
  • Farangursheimild 20 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

 

Sparsæti (QSAVE)

  • Veitir ekki vildarpunkta.
  • Greitt við bókun.
  • Bókunargjald í símsölu ISK 1.200.
  • Má breyta í sama fargjald eða dýrara.
  • Breytingargjald per fluglegg ISK 2.000 innanlands eða ISK 6.000 í millilandaflugi. Einnig þarf að greiða fargjaldamismun ef einungis er laust á dýrara fargjaldi.
  • Endurgreitt að fullu, fram að brottför, að frádregnum ISK 2.000 kr. innanlands eða ISK 6.000 í millilandaflugi per fluglegg.
  • Takmarkaður sætafjöldi á þessu fargjaldi.
  • Farangursheimild 20 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

 

Bónussæti (TBONUS)

  • Veitir ekki vildarpunkta.
  • Greitt við bókun.
  • Bókunargjald í símsölu ISK 1.200.
  • Má breyta í sama fargjald eða dýrara.
  • Breytingargjald per fluglegg ISK 2.000 innanlands eða ISK 6.000 í millilandaflugi. Einnig þarf að greiða fargjaldamismun ef einungis er laust á dýrara fargjaldi.
  • Óendurgreiðsluhæft.
  • Takmarkaður sætafjöldi á þessu fargjaldi.
  • Farangursheimild 20 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

  

Nettilboð (USPEC/SNET/EWEEKEND)

  • Gildir aðeins meðan á tilboði stendur.
  • Greitt við bókun.
  • Veitir ekki vildarpunkta.
  • Einungis bókanlegt á netinu.
  • Má einungis breyta í dýrara fargjald. Ekki er hægt að breyta nettilboði í nettilboð.
  • Breytingargjald per fluglegg ISK 2.500 innanlands eða ISK 9.500 í millilandaflugi. Að auki þarf að greiða fargjaldamismun í dýrara fargjald.
  • Óendurgreiðsluhæft.
  • Takmarkaður sætafjöldi á þessu fargjaldi.
  • Farangursheimild 20 kg.
  • Sæti er ekki frátekið fyrr en greiðsla fer fram.

 

Vildarpunktasæti (RVILD)

  • Bóka þarf flug með minnst þriggja daga fyrirvara hjá Flugfélagi Íslands í síma 570-3030.
  • Veitir ekki vildarpunkta. 
  • Börn 2- 15 ára greiða 50% af punktum.
  • Börn yngri en 2 ára greiða 10% af punktum.
  • Eftir að bókun hefur verið staðfest eru Vildarpunktar ekki endurgreiddir.
  • Ráðlagt er að bóka Vildarferð með góðum fyrirvara þar sem framboð af sætum er takmarkað.
  • Þjónustugjald er ISK 2.000 fyrir fullorðna.
  • Þjónustugjald er ISK 1.000 fyrir börn á aldrinum 2-15 ára.
  • Börn yngri en 2ja ára greiða ekkert þjónustugjald.
  • Farþegi þarf að greiða flugvallarskatta og gjöld.
  • Má breyta ef Vildarpunktasæti er til á viðkomandi flugi (minnst 3ja daga fyrirvari, takmarkaður sætafjöldi).
  • Breytingargjald er ISK 1.500 per fluglegg.
  • Óendurgreiðsluhæft.

  

Hoppfargjald (ZHOPP)

  • Eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12-25 ára.
  • Hopp fargjald er biðlistafargjald, ekki bókað. Farþegi fær eingöngu sæti ef laust er með fluginu.
  • Veitir ekki Vildarpunkta.
  • Ekki má breyta hoppfargjald í nettilboðsfargjald.
  • Ekkert breytingagjald.
  • Endurgreitt að fullu.
  • Biðlisti við innritun, fyrstur kemur, fyrstur fær. 

 

Barnafargjöld

  • Gildir fyrir börn upp að 12 ára aldri.
  • Börn 2-11 ára fá 50% afslátt af því fullorðinsfargjaldi sem laust er á.
  • Ungabörn yngri en 2ja ára frá 90% afslátt af því fullorðinsfargjaldi sem laust er á.
  • Sömu fargjaldaskilmálar gilda fyrir börn, ungabörn og fullorðina.
  • Sjá nánar um börn sem ferðast án fylgdar fullorðna.


____________________________________________________________

Ferða- og samningsskilmálar Flugfélags Íslands vegna farþegaflutninga

VARÐAR RAFRÆNA FARSEÐLA SEM FLUGFÉLAG ÍSLANDS GEFUR ÚT

ATHUGIÐ:
Ef ferð farþega er heitið til annars lands kunna að gilda ákvæði  Varsjársamnings, en sá samningur kveður á um og takmarkar að jafnaði ábyrgð flugfélags á dauða eða meiðslum, ásamt tapi farangurs eða skemmdum.  Ef um innanlandsflutning er að ræða gilda ákvæði loftferðalaga um ábyrgðartakmörkun.  
Sjá nánar ""Tilkynning um takmörkun ábyrgðar".

SAMNINGSSKILMÁLAR
1.
Í samningi þessum merkir orðið "Varsjársamningurinn" alþjóðasamning um samræmingu tiltekinna reglna um loftflutning milli landa, er undirritaður var í Varsjá 12. október 1929, eins og honum var breytt í Haag 28. september 1955, sbr. lög nr. 41/1949, með síðari breytingum.  
Með "loftferðalögum" er átt við lög um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum.

2. Flutningur samkvæmt rafrænum farseðlum gefnum út af Flugfélagi Íslands er háður reglum þeim og takmörkunum á ábyrgð, sem ákveðnar eru í Varsjársamningnum, nema ekki sé um "milliríkjaflutning" að ræða samkvæmt þeim samningi.  Þegar um flutning innanlands er að ræða er flutningur háður reglum þeim og takmörkunum á ábyrgð, sem ákveðnar eru í loftferðalögum.

3. Að svo miklu leyti sem það brýtur ekki í bága við það, er að framan getur, gilda um flutning og aðra þjónustu flugfélags: (I) gildandi gjaldskrár, (II) flutningsskilmálar þessir, (III) farangursmiði og brottfararspjald.

4. Sérhver undantekning eða takmörkun bótaskyldu flugfélags skal gilda um og ná til umboðsmanna, starfsmanna og fulltrúa Flugfélagsins, svo og til eigenda flugfara, er til flutnings eru notuð, umboðsmanna þeirra, starfsmanna og fulltrúa.

5. Innritaður farangur afhendist handhafa farangursmiða. Verði tjón á farangri ber að tilkynna flugfélaginu það skriflega jafnskjótt og það kemur í ljós eða í síðasta lagi sjö dögum eftir móttöku, en verði töf á afhendingu ber að senda kvörtun innan 21 dags frá afhendingu farangurs til flutnings.  

6. Rafrænn farseðill gefinn út af Flugfélagi Íslands gildir í eitt ár frá útgáfudegi, nema annað sé tekið fram í gjaldskrám flugfélagsins, flutningsskilmálum eða ámóta reglum. Fargjald samkvæmt rafrænum
farseðli gefnum úr af Flugfélagi Íslands er háð breytingum, er verða kunna áður en flutningur er hafinn. Getur flugfélag neitað flutningi, ef gildandi fargjald hefur eigi verið greitt.

7. Flugfélagið skuldbindur sig til að gera sitt ýtrasta til að flytja farþega og farangur á sem skemmstum tíma. Eigi er tekin ábyrgð á tímum, í flugáætlun eða annars staðar, og eru þeir ekki hluti flutningssamnings. Flugfélagi er heimilt að skipta um flytjanda eða flutningstæki án fyrirvara, ef nauðsyn krefur. Áætlunum má breyta án fyrirvara og sleppa viðkomustöðum, er í farseðli greinir, ef nauðsyn krefur. Áætlunum má breyta án fyrirvara. Flugfélag ber ekki ábyrgð á, að farþegi nái framhaldsflugferð. Flugfélagið ber ekki ábyrgð á niðurfellingu flugs vegna óviðráðanlegra orsaka sem meðal annars eru veðurskilyrði, hryðjuverk, stjórnaraðgerðir, stríð, náttúruhamfarir, eldsvoðar, verkföll og aðrar ástæður sem flugfélagið ræður ekki við. Þá er flugfélagi sérstaklega heimilt að breyta flugnúmerum og flugtímum farþega, þ.m.t. að láta þá farþega hafa forgang í flug sem hafa beðið lengst eftir nýju flugi sökum niðurfalls eða seinkunar á sínu flugi af einhverjum óviðráðanlegum ástæðum. Flugfélag ber ekki ábyrgð á kostnaði sem farþegi verður fyrir ef flug er fellt niður af ofangreindum óviðráðanlegum orsökum, þessi takmörkun ábyrgðar nær til hótel-, fæðis- og ferðakostnaðar sem og öllum öðrum kostnaði sem farþegi kann að verða fyrir.

Sjá nánar um rétt farþega á heimasíðu Flugmálastjórnar

8. Farþega ber að fullnægja ákvæðum laga og reglugerða um ferðalög, leggja fram brottfararskjöl og komuskjöl og önnur nauðsynleg
skilríki og mæta í flughöfn á þeim tíma, er flugfélag tilgreinir, eða ef enginn tími er greindur, svo snemma að ráðrúm sé til að ljúka undirbúningi brottfarar.

9. Engum umboðsmanni, starfsmanni né fulltrúa flugfélags er heimilt að breyta, lagfæra eða fella úr gildi nokkur kvæði þessara flutningsskilmála.

Flugfélag áskilur sér rétt til að synja hverjum þeim um flutning, sem aflað hefur sér farseðils í trássi við gildandi lög eða gjaldskrár flugfélags,
reglur eða reglugerðir.

Farangur
Af öryggisástæðum er bannað að pakka með farangri ELDSPÝTUM, KVEIKJURUM, GASI, MÁLNINGU, FLUGELDUM, BLEIKIEFNUM og þess háttar.

Gættu þess að farangur sé í samræmi við reglur og ef þú ert í vafa þá ráðfærðu þig við starfsfólk flugfélagsins.

TILKYNNING UM TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR Á FARANGRI
Ekki má setja eftirfarandi hluti í innritaðan farangur, lausafé, skartgripi, verðmæta málma, tölvur, rafmagnstætki, framseljanleg bréf eða önnur verðmæti, viðskiptaskjöl, vegabréf, eða önnur persónutengd skjöl, viðskiptaleg sýnishorn, blautan fatnað og aðra blauta hluti sem geta skemmt út frá sér annað innihald farangurs. Ábyrgð vegna taps, tafa eða skemmda á farangri takmarkast sem hér segir, nema hærra verðgildi sé gefið upp fyrirfram og að viðbótargjöld séu greidd:  Flugfélag Íslands bera ekki ábyrgð á missi, skemmdum eða seinkun á afhendingu brothættra eða viðkvæmra hluta (s.s gler, postulín, myndum o.sfr.), peningum, skartgripum, silfurmunum, antik vörum, og svipaðra verðmætra hluta, framseljanlegum bréfum, heimildarskírteinum eða öðrum verðmætum viðskiptaskjölum, vegabréfum öðrum persónuskilríkjum eða sýnishornum (s.s vegna vörukynninga), matvælum í farangri né skemmdum sem mætvæli í farangri kunna að valda, hverskonar skemmdum á innihaldi sem fljótandi vökvi í farangri kann að valda, rafmagnstækum hverskonar (s.s. tölvur, útvörp, myndavélar o.sfr.), hverskonar hlutum sem eru ekki vel innpakkaðir (s.s. sjóbretti, skíði, hjól, kerrur, vagnar o.sfr.) eða lyfjum sem eru hluti af farangri farþega, hvort sem er með eða án vitneskju flugfélagsins    Hverskonar hlutum sem eru festir utan á farangur og hafa skemmst eða tapast. Tjón sem tengist, tapi, töfum eða skemmdum á farangri er ekki á ábyrgð félagsins, (s.s. vegna viðskiptafunda, o.sfr.).  Hlutir sem farþegi er með sem handfarangur eru á hans ábyrgð.

Eftirtalda hluti má flytja kostnaðarlaust til viðbótar við innritaðan farangur:
-kvenhandtaska, veski eða handtaska sem er í samræmi við venjulegan ferðaklæðnað og er ekki notuð undir hluti sem munu annars flokkast undir farangur.
-yfirhöfn, sjal, slá eða teppi.
-regnhlíf eða göngustafur.
-litil myndavél og/eða sjónauki.
-sanngjarnt magn af lesefni fyrir flugferðina.
-ungbarnamatur til neyslu í vélinni og burðarrúm.
-hjólastól sem er hægt að leggja alveg saman (sem þarf í flestum tilvikum að hafa í farangursrými) og/eða hækjur og/eða spelkur eða önnur
hjálpartæki sem farþegi þarf að nota; svo framarlega sem farþegi er háður þeim.

Allir aðrir hlutir eins og flugtöskur, skjalatöskur, ritvélar, kvensnyrtitöskur, stórar myndavélar o.s.frv.
- verða vigtaðir og ef við á verða lögð gjöld á yfirvigt farangurs.

Öryggiseftirlit
Öryggiseftirlit er á flestum flugvöllum. Við slíkt eftirlit geta staðaryfirvöld lagt hald á beitta hluti t.d. vasahnífa og aðra hluti sem taldir eru hættulegir. Til að forðast hugsanleg óþægindi mælum við með að slíkum hlutum sé pakkað með skráðum farangri.

Farangursleiðbeiningar
Í farangri mega ekki vera hlutir
-sem eru líklegir til að verða fyrir hnjaski í flugvél
-sem gengið er frá á ófullnægjandi hátt
-sem bannað er að flytja samkvæmt lögum eða reglugerðum sérhvers ríkis
sem flogið er til frá eða yfir.

Af öryggisástæðum má ekki flytja eftirtalda hluti í farþegafarangri án samþykkis og undangengins samkomulags við flugfélagið:
-lofttegundir á þrýstikútum (eldfimar, ekki eldfimar eða eitraðar).
-ætandi efni (t.d. sýrur, basar og blautar rafhlöður).
-sprengiefni, skotvopn, hergögn, flugeldar og blys.
-eldfimur vökvi eða föst efni (t.d. kveikjarar og upphitunareldsneyti, eldspýtur og aðrir hlutir sem auðveldlega kviknar í).
-tærandi efni (t.d. bleikiefni og peroxíð).
-eiturefni.
-geislavirk efni.
-kvikasilfur og segulmagnað efni.
-aðrir hlutir sem geta stefnt öryggi flugvélarinnar, persónum eða eignum í hættu. Lyfjum og snyrtiáhöldum í litlu magni (t.d. hársprey og ilmvötn) sem eru nauðsynleg fyrir ferðina er ráðlegt að pakka með handfarangri.

Mundu að læsa ferðatöskum til að koma í veg fyrir að þær opnist.

Vinsamlegast merktu allan farangur með nafni og heimilisfangi svo auðveldara sé að þekkja hann aftur. Merkispjöld fást á söluskrifstofum og í farangursmóttöku.

Tilkynning un takmörkun ábyrgðar

Millilandaflug

Hér með tilkynnist farþegum, sem eru á leið til áfangastaðar í öðru landi en upprunalandinu, að um ferðina kunna að gilda ákvæði Varsjársamningsins, meðal annars hvað varðar ábyrgðartakmörkun vegna dauða, líkamstjóns eða tjóns á farangri. Venjulega er hægt að afla sér aukatryggingar með því að kaupa vátryggingu hjá tryggingarfélögum.  Takmörkun á ábyrgð flugfélagsins samkvæmt Varsjársamningnum
hefur ekki áhrif á slíka vátryggingu.

Innanlandsflug

1.  Reglur um líkamstjón
Ef farþegi lætur lífið eða hlýtur líkamsmeiðsl eða heilsutjón af völdum slyss og flytjandi leiðir sönnur að því að sá sem fyrir tjóninu varð hafi
sjálfur verið valdur eða samvaldur að því, má færa skaðabætur niður eða fella þær niður.  Við sömu aðstæður skal flytjandi laus úr ábyrgð ef hann leiðir sönnur að því að hann sjálfur og starfsmenn hans hafi gert allar
nauðsynlegar varúðarráðstafanir til þess að afstýra tjóni eða það hafi eigi verið á þeirra valdi.  Þó er flugrekenda aðeins heimilt að bera síðari málsvörn fyrir sig ef höfuðstóll bótaskyldrar tjónsfjárhæðar
fari fram úr jafnvirði 100.000 SDR í íslenskum krónum og er aðeins heimil hvað varðar þann hluta sem fram úr áðurgreindum fjárhæðarmörkum fer.

Flugrekandi skal án tafar og ekki síðar en 15 dögum eftir að ljóst er hver
hinn slasaði eða látni er inna af hendi fyrirframgreiðslu til að mæta bráðum fjárhagsþörfum og skal greiðslan taka mið af aðstæðum.  Greiðsla þessi skal ekki vera lægri en sem nemur jafnvirði 15.000 SDR í íslenskum krónum vegna hvers farþega sé um dauðaslys að ræða.  Það að inna fyrirframgreiðslu þessa af hendi jafngildir þó ekki viðurkenningu á ábyrgð og kemur í frádráttar við endanlegt uppgjör bóta vegna slyssins.  Hún er einnig afturkræf ef flugrekandi sannar að farþegi hafi verið valdur eða samvaldur að slysinu eða að sá sem greiðsluna fékk hafi ekki átt lögvarið tilkall til hennar.

2.  Reglur um ábyrgðartakmörkun vegna farangurs
Ábyrgð vegna taps, tafa eða skemmda á farangri takmarkast sem hér segir nema hærra verðgildi sé gefið upp fyrirfram og viðbótargjöld séu greidd:

Ábyrgð flytjanda vegna þess að farangur glatast, eyðileggst, skemmist eða tefst skal takmörkuð við 1.000 SDR vegna hvers farþega, nema farþegi hafi við innritun farangurs sérstakelga tilgreint þá hagsmuni sem tengdir eru við afhendingu farangurs á ákvörðunarstað og greitt umkrafið aukagjald, og gildir þá hið tilgreinda verðmæti sem hámark á ábyrgð flytjanda, nema hann sanni að raunverulegir hagsmunir farþega hafi verið minni. 
Heimilt er að gefa upp umfram verðgildi á einstaka hlutum.


YFIRBÓKUN
Yfirbókun getur orðið á flugi og svo kann að fara að ekki sé laust sæti í flugi þar sem búið er að staðfesta bókun. Þeim sem ekki fá far þegar svo er ástatt er áskilinn réttur til skaðabótagreiðslu.

Barnshafandi konur

Barnshafandi konur sem komnar eru 8 mánuði á leið eða lengra sem og þær sem fætt hafa barn fyrir tímann, geta einungis ferðast með okkur hafi þær lagt fram læknisvottorð, gefið út innan 72 klukkustunda frá brottför, þar sem staðfest er að þeim stafi engin hætta af fluginu. Barnshafandi konur mega undir engum kringumstæðum fljúga tvær síðustu vikur meðgöngunnar.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára