English  Dansk
Forsíða

Barnastólar

 

Farþegum sem ferðast með ungabörn er heimilt að hafa samþykkta barnabílstóla með sér um borð, að því gefnu að sæti séu laus í viðkomandi flugi.
Farþegar geta tryggt sér sæti fyrir barnabílstól með því að kaupa barnafargjald en þau sæti eru einungis bókanleg símleiðis eða í farþegaþjónustunni á viðkomandi flugstöð.
Farþegar eru beðnir um að mæta tímanlega fyrir flug.

Notkun barnabílstóla er heimil á öllum stigum flugferðarinnar, þar á meðal við flugtak og lendingu, að því gefnu að þeir séu hannaðir og samþykktir í samræmi við a.m.k eitt af eftirtöldu:

• samþykktir til notkunar í ökutækjum í samræmi við Evrópustaðla ECE R44-03 eða nýrri viðbætur.
• samþykktir til notkunar í vélknúnum ökutækjum og flugvélum í samræmi við bandaríska staðla US FMVSS nr. 213 og hafi verið framleiddir samkvæmt þessum stöðlum frá og með 26. febrúar 1985.
• Barnabílstólar sem standast bandarískar kröfur verða að bera eftirfarandi merkingar með rauðu letri:


• a) "This child restraint system conforms to all applicable federal motor vehicle safety standards"


• og b) "This restraint is certified for use in motor vehicles and aircrafts" .

 

samþykktir til notkunar í flugvélum í samræmi við þýska staðla um "Qualification Procedure for Child Restraint Systems in Aircraft" (TUV Doc.:/958-01/2001). samþykktir til notkunar í vélknúnum ökutækjum og flugvélum í samræmi við kanadíska staðla CMVSS 213/213,1.

 

Barnabílstóllinn verður að skorðast við flugsætið með einnar ólar öryggisbelti, og vera útbúinn með fimm punkta belti sem skorðar kjöltu, búk og axlir barnsins.

 

Stólar sem eingöngu er hægt að festa með 3 punkta beltum eru ekki leyfðir um borð.

 

Barnabílstóllinn á að vera staðsettur í gluggasæti. Starfsfólki okkar er heimilt að synja farþega um að nota stólinn í flugi af öryggisástæðum eða ef hann uppfyllir ekki kröfur en þá þarf barnið að sitja í kjöltu forráðamanns.

 

Bakvísandi bílstólar fyrir 9-18 kg. komast ekki fyrir í sæti í vélum félagins.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára