English  Dansk
Forsíða

Börn ein á ferð

 

Börn undir 5 ára aldri mega undir engum kringumstæðum ferðast án forráðaraðila.
Farþegar sem ferðast með ungbörn (0-2 ára) sitja með þau í fanginu, með belti sem þeir fá afhent í byrjun flugs.

Hægt er að panta fylgd fyrir börn yngri en 5 ára. Þá er greitt full fargjald (forgangsæti ) aðra leið og síðan skattar til baka. Þetta á við bæði ef fylgdarmaður er aðstandandi barnsins og ef Flugfélag Íslands útvegar fylgdarmann. Athugið að betra er að panta fylgd með góðum fyrirvara því ekki er hægt að ábyrgjast að fylgdarmaður fáist með stuttum fyrirvara. Einungis er hægt að nýta þetta fargjald ef flogið er fram og til baka með sömu vél ef flug hefst í Reykjavík og til baka með næsta flugi ef flug hefst á öðrum áfangastað.

Sérstakar reglur gilda þegar börn 5-12 ára ferðast ein með Flugfélaginu.

Við innritun þurfa forráðamenn að fylla út þar til gert eyðublað fyrir börn 5-12 ára sem ferðast ein. Eyðublaðið er hægt að nálgast við innritun

 

 

Skilmálar barnafargjalda

Barnafargjöld

  • Gildir fyrir börn upp að 12 ára aldri.
  • Börn 2-11 ára fá 50% afslátt af því fullorðinsfargjaldi sem laust er á.
  • Ungabörn yngri en 2ja ára frá 90% afslátt af því fullorðinsfargjaldi sem laust er á.
  • Sömu fargjaldaskilmálar gilda fyrir börn, ungabörn og fullorðina.

 

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára