English  Dansk
Forsíða

Ferðast með gæludýr

 

Regla varðandi bókanir

Dýr sérstaklega hundar, verða ekki fluttir nema að þeir hafi verið bókaðir með fyrirvara.

Eigendur / farþegar þurfa sjálfir að leggja til viðeigandi búr og gefa þarf dýrunum róandi lyf fyrir brottför í samráði við dýralækni. Óróleg dýr verða ekki flutt.

 

Krafa er gerð um að búrið sé úr hörðu efni þannig að það leggist ekki saman við flutning og að gólfið í búrinu sé vatnshelt.

 

Greiða þarf sérstakt gjald fyrir dýrin / búrin og fer það eftir þyngd eða fyrirferð.  Ef senda á dýr í frakt, verður að koma með þau eigi síðar en klukkutíma fyrir brottför.

 

Nauðsynlegt er að farþegar með dýr í farangri mæti tímanlega í innritun.

 

Lifandi dýr eru flutt á ábyrgð sendanda.

 

Regla varðandi dýr í farþegarými flugvélar

Lifandi dýr eru ekki leyfð í farþegarými flugvéla Flugfélags Íslands nema um sé að ræða blindrahund á ferð með eiganda sínum. Blindrahundar þurfa ekki að vera með múl og fylgja þeir eiganda sínum án endurgjalds.  Eigandi blindrahundsins ber ábyrgð á öllu tjóni sem hundurinn kann að valda.

 

 

 

Dýrin eru höfð í farangursgeymslu á meðan flugi stendur. Sama hitastig er í farangursgeymslum og farþegarými vélanna.

Verð miðast við stærð búra.

  • Dýr - lítið kr. 2.000
  • Dýr - miðlungs kr. 4.000
  • Dýr - stórt kr. 7.000


Viðmiðunarstærðir búra miðað við hæð:

  • Lítið:       0 - 30cm.
  • Miðlungs:   31 - 60cm.
  • Stórt:      61cm.

 

Hvernig búr eru leyfð:


Hundabúr leyft

 

Ekki leyft:

 

Hundabúr ekki leyft1Hundabúr ekki leyft2Hundabúr ekki leyft3

Leyfilegt er að taka dýr með sér í flug og verður að taka það fram við bókun. Þó skal það tekið fram að eigendur þurfa sjálfir að koma með búr og gefa þarf dýrunum róandi lyf í samráði við dýralækni fyrir brottför. Krafa er gerð um að búrið sé úr hörðu efni þannig að búrið leggist ekki saman við flutning og að gólfið í búrinu sé vatnshelt. Dýrin eru höfð í farangursgeymslu á meðan flugi stendur. Sama hitastig er í farangursgeymslum og farþegarými vélanna.


Verð miðast við stærð búra.

  • Dýr - lítið kr. 1500
  • Dýr - miðlungs kr. 3.000
  • Dýr - stórt kr. 6.000

 

Viðmiðunarstærðir búra:

  • Lítið:       48cm x 32,5cm x 29cm.
  • Miðlungs:  58cm x 37cm x 32cm.
  • Stórt:      68cm x 48cm x 45,5cm
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára