English  Dansk
Forsíða

Súrefnisþjöppur

 

Farþegum er heimilt að hafa samþykktar súrefnisþjöppur (Portable Oxygen Concentrators (POC)) með sér um borð. Eftirfarandi tæki eru leyfð af Flugfélagi Íslands:
• AirSep LifeStyle
• AirSep FreeStyle (Eingöngu tæki sem eru merkt RTCA/DO-160D Section 21 Category M Compliant)
• Inogen One
• SeQual Eclipse
• Respironics, EverGo

Notkun súrefnisþjappa er heimil á öllum stigum flugferðarinnar að því gefnu að tæki sem er í notkun sé skorðað undir sætinu fyrir framan farþegann eins og hvern annan handfarangur á meðan flugvélin er í akstri, flugtaki eða lendingu.
Súrefnisþjöppur hafa ekki áhrif á reglur félagsins um fjölda handfarangurs um borð.


Við bókun flugs þarf að koma fram að fyrirhuguð er notkun á surefnisþjöppu um borð.


Farþegi þarf að framvísa við innritun, undirritaða staðfestingu læknis þar sem fram kemur:
• Að notandi tækis hafi líkamlega og andlega getu til að sjá, heyra og skilja viðvörunarmerki frá tæki og getur, án aðstoðar, gert viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við þessum aðvörunum.
• Upplýsingar um hvort þörf er á súrefni fyrir alla eða hluta ferðarinnar.
• Upplýsingar um hámarks stillingu á súrefnisflæði í samræmi við loftþrýsting í farþegarými flugvélarinnar við eðlilegar aðstæður.

Farþeginn þarf að hafa þessa staðfestingu á sér á meðan á flugi stendur og framvísa til áhafnar ef hann er beðinn um það. Hægt er að nálgast eyðublað þetta á heimasíðu félagsins.
Farþegi má eingöngu nota krem og smyrsl sem eru samþykkt og örugg til notkunar við súrefnisgjöf. Farþeginn verður að vera með nægilegt magn af auka rafhlöðum sem duga í flugferðinni sem og gera ráð fyrir óvæntum seinkunum í flugi sem gætu komið upp.Farþeginn þarf að ganga úr skugga um að auka rafhlöður sem geymdar eru í handfarangi séu pakkaðar á þann hátt að ekki stafi af hætta vegna skammhlaups.


Félagið getur því miður ekki útvegað súrefnisþjöppur eða rafhlöður í þær.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára