English  Dansk
Forsíða

Flugkappar

FLUGKAPPAR

- krakkar sem fljúga oft innanlands


Stórlækkað verð fyrir börn sem fljúga ein !

Sum börn fljúga reglulega ein á milli landshluta. Flugfélag Íslands vill koma til móts við foreldra og forráðamenn þeirra með sérstöku lágfargjaldi sem heitir Flugkappar, en það er allt að 40% ódýrara en hefðbundið barnafargjald.

 

Notaðu Flugkappa í tengiflug

Nú er hægt að bóka Flugkappa í tengiflug innanlands. Ef þú bókar t.d. Akureyri - Ísafjörður fram og til baka þá eru tekið af inneign fyrir þremur flugleggjum í staðin fyrir tvo.

 

 

  • Foreldrar kaupa 10 miða kort ( 5 ferðir fram og til baka).
  • Kortið gildir á alla áfangastaði innanlands.
  • Flugkappakort eru eingöngu til sölu fyrir foreldra og forráðamenn barna á aldrinum 2 - 11 ára.
  • Ætlað börnum á aldrinum 5 - 11 ára.
  • Pakkann má nota fram að 12 ára afmælisdegi, ef pakkinn er ekki fullnýttur þá er hægt að nota inneignina upp í almennt fargjald.
  • Börn 2 - 4 ára verða að ferðast í fylgd með fullorðnum. Þó er hægt að kaupa Flugkappakort fyrir þau.
  • Ekkert breytingargjald.
  • Takmarkaður sætafjöldi
  • Ef Flugkappinn ferðast einn fylgist flugfreyja/þjónn sérstaklega með barninu á meðan á fluginu stendur.
  • Krakkarnir fá glaðning frá Flugfélagi Íslands við fyrstu skráningu.
  • Verð aðeins kr. 42.500 með flugvallarsköttum.


Upplýsinga- og bókunarsími  570 3030

Athugið að í hverju flugi er takmarkaður sætafjöldi ætlaður Flugköppum

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára