English  Dansk
Forsíða

Hopp fargjöld

Hoppfargjöld eru í boði fyrir farþega á aldrinum 12-25 ára.

 

Þá er farþegi listaður á flug en er ekki með staðfest sæti. Hægt er að skrá sig á vefnum (bókunarvél) og þá greiðir farþegi við bókun. Ef fullt er í flugið og Hoppfarþegi kemst ekki með getur hann flutt listunina á annað flug eða fengið endurgreitt.

 

Einnig er hægt að hringja í þjónustuver Flugfélagsins 570 3030 og lista sig og þá er nóg að borga við brottför.

 

Eindregið er mælt með því að farþegi listi sig, hvort sem það sé í gegnum vefinn eða í síma, áður en hann mætir á flugvöllinn.

 

Athugið að ef skráð er í síma eða í flugstöð þá leggst 1.200 kr. bókunargjald ofan á fargjaldið.


Hoppfarþegar skulu mæta í síðasta lagi 30 mínútum fyrir brottfor. Hins vegar ef mikið er bókað á vélina er ráðlagt að mæta 1 klukkustund fyrir brottför.

Hoppfarþegar raðast á lista eftir mætingu í flugstöð, fyrstur kemur fyrstur fær.

 

 

Skilmálar hoppfargjalds:

  • Eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12-25 ára.
  • Hopp fargjald er biðlistafargjald, ekki bókað. Farþegi fær eingöngu sæti ef laust er með fluginu.
  • Veitir ekki Vildarpunkta.
  • Ekki má breyta hoppfargjald í nettilboðsfargjald.
  • Ekkert breytingagjald.
  • Endurgreitt að fullu.
  • Biðlisti við innritun, fyrstur kemur, fyrstur fær.

 

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára