English  Dansk
Forsíða

Flugfrakt Flugfélags Íslands

 

Frakt Kassi

Vertu fyrstur með vörurnar í hillunar.

Á tímum samkeppni í verslun og þjónustu byggist góður árangur æ meir á því að vera fyrstur á markaðinn með vörur sínar og þjónustu. Flugfrakt Flugfélags Íslands er því ákjósanlegasti kosturinn þegar tryggja þarf aukið forskot á markaðnum.

 

Sækjum og sendum

Til að viðskiptavinir okkar nái hámarksárangri bjóðum við upp á að sækja sendingar til viðkomandi fyrirtækis og koma henni beint til viðtakanda. Allt sem þú þarft að gera er að hringja - við komum og sækjum, fljúgum með fraktina og sendum til viðskiptavinarins. Þannig getum við tryggt fljóta og örugga þjónustu með fraktsendingar frá upphafi til enda.

 

Frystar eða  viðkvæmar, allt á leiðarenda

Við bjóðum tölvuvætt farmbréfakerfi og höfum frysti- og kæligeymslur til að flytja matvöru, blóm og aðrar viðkvæmar vörur. Við bjóðum ekki eingöngu fraktflug til áfangastaða okkar, heldur er fraktin einnig flutt með rútu til nærliggjandi staða.

Geymsla á pökkum sem frakt

Flugfélag Íslands bíður sínum viðskiptavinum upp á þá þjónustu að geyma pakka gegn gjaldi. Oft biðja viðskiptavinir starfsfólk FÍ að geyma pakka fyrir sig sem verður svo sótt af öðrum aðila síðar. Þetta er oft í skamman tíma, oftast innan sólarhrings. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá í fraktdeild FÍ.
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára