English  Dansk
Forsíða

Allar gerðir flugvéla Flugfélagsins til leigu

 

Unnt er að taka á leigu með stuttum fyrirvara allar gerðir flugvéla Flugfélags Íslands, hvort sem um farþega- eða vöruflutninga er að ræða. Vélarnar eru misstórar, frá 37 til 50 sæta, og geta þær sinnt verkefnum af ýmsu tagi, bæði innanlands og í flugi milli landa.

 

Fokker 50

Fokker 50

Nú þegar hefur Flugfélagið áratugareynslu af slíkum vélum hér á landi. Fokker 50 vélarnar eru rúmgóðar, hraðfleygar og sérstaklega hljóðlátar og henta einkar vel til farþegaflutninga.
Leiga pr. klst. er kr. 430.000

 

DASH 8 vélar

 

Dash 8

 

DASH 8 vélar hafa ýmsa eiginleika sem ekki hafa verið í boði á íslenskum
flugmarkaði, þær þurfa stutta flugbraut, t.d. getur hún farið fullhlaðin af
um 800 metra flugbraut, hún þolir meiri hliðarvind en sambærilegar vélar og
hún tekur meiri frakt og getur einnig verið sérstaklega útbúin til
fraktflutninga

Bombardier framleiðandi DASH 8 vélanna er leiðandi í framleiðslu flugvéla
og hefur áratuga reynslu á því sviði. Bombardier afhenti á síðast ári á
fjórða hundrað flugvéla til nýrra eigenda og er stærsti framleiðandi í
flokki flugvéla með undir 100 farþegasæti.
Leiga pr. klst. 395.000

Símanúmer leiguflugsdeildar 570 3607 / 570 3609

leiguflug@flugfelag.is

 

 

Fyrirspurn um leiguflug

Tengiliður






Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára