English  Dansk
Forsíða

Vilt þú vinna hjá Flugfélagi Íslands?

 

Flugfélag Íslands er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki, leiðandi í farþega- og fraktflutningum, og þjónar flugrekendum og aðilum í ferðaiðnaði.

Eitt af markmiðum félagsins er að hafa ætíð á að skipa hæfum og liprum liðsmönnum sem sýna frumkvæði og hafa gaman af vinnunni sinni. Hjá Flugfélagi Íslands starfa um 240 manns sem allir gegna lykilhlutverki í starfseminni. Starfsemin fer fram í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og á Ísafirði.




 

Almenn umsókn

ATHUGAÐU að umsóknir fyrir sumarstörf þarf að fylla út sérstaklega og er að finna neðar á síðunni.

Sækja um


Flugfreyjur/-þjónar - sumarstörf

Flugfélag Íslands óskar eftir að ráða flugfreyjur/-þjóna til sumarstarfa.
Við leitum að fólki sem er jákvætt, frammúrskarandi í mannlegum samskiptum, þjónustulundað, árvökult og reglusamt.
Starfsreynsla æskileg, góð tök á íslensku, ensku og dönsku nauðsynleg. Umskjendur þurfa að hafa náð 23ja ára aldri.
Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2012.

Sækja um


Flugvirkjar - framtíðarstörf

Flugfélag Íslands óskar eftir að ráða flugvirkja til starfa. Við leitum að öflugum samstarfsmönnum í frábæran hóp fagmanna sem sinna fjölþættum og krefjandi verkefnum.
Starfið: Öll störf sem að starfsgreininni lúta og heyra undir viðhaldsdeild félagsins.
Hæfniskröfur: Hafa lokið námi í flugvirkjun frá viðurkenndum skóla, heiðarleiki og metnaður til að skila góðu verki, góðir samskiptahæfileikar og jákvætt hugarfar, dugnaður og áhugi á að takast á við fjölbreytt starf og krefjandi verkefni. Reglusemi og árvekni.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 2012.

Sækja um


Sumarstörf 2012

Árlega ræður Flugfélag Íslands starfsfólk til starfa sumarlangt.  Um er að ræða störf vegna afleysinga og aukinna verkefna yfir háannatíma félagsins.  Fjöldi ráðninga liggur ekki fyrir en ljóst að við búast má við einhverri nýliðun sumar.  Ef þú hefur  áhuga á að sækja um sumarstarf hjá félaginu biðjum við þig að fylla út umsókn hér - sjá gula hnappinn að neðan "sækja um". 
   
Líklegt er að ráðið verði í eftirtalin störf:
Farþegaþjónust í Rvk.: Innritun, sala, ofl. - vaktavinna.
Flugþjónusta á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði: Þjónusta á flughlaði, innritun, sala ofl. - vaktavinna.
Hlaðdeild: Þjónusta á flughlaði við komur og brottfarir ofl. - vaktavinna.
Vöruafgreiðsla: Almenn afgreiðsla og þjónusta, frágangur vörusendinga ofl.
Þjónustuver: Sala, bókanir, upplýsingagjöf ofl.
 
Hæfniskörfur: Hafa náð 18 ára aldri, hreint sakavottorð, jákvætt hugarfar, rík þjónustulund, reglusemi, tölvukunnátta, íslensku- og enskukunnátta, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
 
 

Sækja um


Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára