English  Dansk
Forsíða
21.2.2012Safnasafnið hlýtur Eyrarrósina 2012

Safnasafnið hlýtur Eyrarrósina 2012
Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, hlýtur Safnasafnið á Svalbarðsströnd og veittu aðstandendur þess viðurkenningunni móttöku í dag laugardag, við athöfn á Bessastöðum. Eyrarrósin

Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar kynnti Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík Eyrarrósina og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði samkomuna. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sungu einnig nokkur lög við góðar undirtektir gesta.
Verðlaunin sem Safnasafnið hlýtur ásamt Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni í ár voru Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði og þau hljóta 250 þúsund króna verðlaun auk flugmiða.

Handhafi Eyrarrósarinnar, Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands, stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar. Safnið hefur fyrir löngu sannað mikilvægi sitt og sérstöðu í safnaflóru landsins og sýningar þess byggja á nýstárlegri hugsun þar sem alþýðulist og nútímalist mynda fagurfræðilegt samspil. Í sölum Safnasafnsins sýna hlið við hlið frumlegir og ögrandi nútímalistamenn, sjálflærðir alþýðulistamenn, einfarar og börn. Samspil heimilis, garðs, safns og sýningarsala er einstakt og sífellt er bryddað upp á nýjungum. Safnasafnið vinnur ötullega með íbúum sveitarfélagsins og hefur frá upphafi haft frumkvæði að samstarfi við leikskóla- og grunnskólabörn.
Við athöfnina í dag tilkynnti Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík að samningur aðstandenda Eyrarrósarinnar; Listahátíðar, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands, yrði endurnýjaður til næstu þriggja ára, enda mikil ánægja aðstandenda með verkefnið frá upphafi.

Metfjöldi umsókna var um Eyrarrósina í ár, en árlega er auglýst eftir umsóknum í fjölmiðlum og eru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa.
Verðlaunin hafa allt frá stofnun árið 2005 átt þátt í því að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapað sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Verðlaunin eru gríðarlega mikilvæg enda um veglega upphæð að ræða, en tilnefning til Eyrarrósar er einnig mikilsverður gæðastimpill fyrir þau afburða menningarverkefni sem hann hljóta.

14.2.2012Um 27000 Íslendingar kaupa golf á ferð um Ísland sumarið 2011 Flugfélag Íslands er meðliðum að Golf Iceland. Er markmiðið að auka fjölda innlendra sem erlendra ferðamanna á golfí sem afþreyingu á Íslandi

Samkvæmt niðurstöðum könnunar Ferðamálastofu meðal innlendra ferðamanna árið 2011 þá segjast 90% Íslendinga eldri en 18 ára hafa ferðast um Ísland og 12,7% þeirra hafa keypt sér golf á ferðalagi um Ísland. Ekki er spurt hve marga hringi, en gera má ráð fyrir að flestir kaupi fleiri en einn hring og margir mun fleiri.

12,7% þeirra sem ferðast og eru eldri en 18 ára eru nálægt 27.000. Golfið er orðin ein mest keypta afþreying á ferðalögum Íslendinga.Hlutfall þeirra sem kaupa afþreyingu almennt lækkar á milli áranna 2010 og 2011. Þannig sögðust 14,1% hafa keypt golfhring 2010.

Það er munur á kynjum þegar spurt er um golf. 16,2 % allra karla sem voru á ferð um Ísland á síðasta ári keypti golfhring, en 9,2 % kvenna. Í lokin má leika sér með tölur og gera ráð fyrir að þessi hópur hafi að meðaltali keypt tvo hringi hver og greitt að meðaltali 3000 kr fyrir hringinn þá hafa Íslendingar greitt í vallargjöld utan heimaklúbbs sumarið 2011 um 160 milljónir króna.

8.2.2012Fokker50 - 20 ár í flugi á Íslandi

Flugfélag Íslands fagnar því þann 15.febrúar 2012 að það séu 20 ár frá því fyrsta Fokker50 vélin kom til landsins á Akureyri. Fokker50 vélarnar leystu Fokker27 vélar af hólmi. Fokker vélarnar hafa þjónað Íslendingum vel í gegnum tíðina og munu vonandi gera um ókomin ár.

 

Fokker 50-1

Fyrsta flugvél Flugleiða af gerðinni Fokker 50, TF-FIR, "Ásdís" við komuna til Akureyrar beint frá verksmiðjum Fokker í Hollandi 15. febrúar 1992.

 

ÁGRIP AF SÖGU ATVINNUFLUGS Á ÍSLANDI

 

 

Fokker 50-2

 

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1757262
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/82408/

7.2.2012Íslendingafélag á Grænlandi

Föstudaginn 3.febrúar var stofnað nýtt íslendingafélag í Nuuk. Er félagið stofnað til að styðja við tengslin milli Grænlands og Íslands.

 

Nánari upplýsingar um félagið er hægt að finna á Facebook félagsins:

http://www.facebook.com/pages/Islandip-kammai-Islandsk-venskabsforening/279117048813539?sk=photos#!/pages/Islandip-kammai-Islandsk-venskabsforening/279117048813539?sk=wall

 

Einnig umfjöllun um félagið í grænlenskum miðli:

http://sermitsiaq.ag/node/117849

1.2.2012Viðbúnaður vegna lendingar Fokker 50 frá Egilsstöðum

Viðvörunarbúnaður í flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur gaf til kynna að lendingarbúnaður vélarinnar væri ekki í lagi.  Í samræmi við verklagsreglur fór viðbúnaðaráætlun Reykjavíkurflugvallar í gang þrátt fyrir að talið væri að um bilun í viðvörunarbúnaði væri að ræða en ekki í lendingarbúnaði.

 

Vélin lenti á Reykjavíkurflugvelli kl. 10:05 með eðlilegum hætti.

 

26 farþegar voru um borð auk 3ja áhafnar meðlima. Eftir að farþegar voru komnir inn í flugstöð fór flugstjóri vélarinnar yfir atvikið með farþegum og útskýrði enn frekar hvað hafði gerst og viðbrögðin við því.

26.1.2012Nýjar Dash 8-200 vélar Flugfélags Íslands

Flugfélag Íslands mun taka í notkun tvær nýjar Dash8-200 vélar á næstu misserum. Þær leysa af hólmi tvær Dash 8-100 vélar.

 

Nokkrar nýjungar koma með nýjum Dash8 8-200 vélunum, svo sem ný tölvustýrð mælitæki í stjórnklefa sem og auka eldsneytistankar.  

 

Nánari upplýsingar um innleiðing á þessum nýjungum voru birtar í fréttabréfi Bombardier sem er framleiðandi Dash flugvéla. 

 

Sjá fréttabréf (PDF)

26.1.2012Flugfrelsi fyrir 16 ára og eldri

Flugfélag Íslands býður upp á nýjan kost fyrir fólk sem er mikið á ferðinni innanlands. Flugfrelsi kallast þessi nýja vara en í því felst að keyptir eru sex flugleggir en kortin virka svipað og klippikort. Nýjungin leggst vel í viðskiptavini sem margir hverjir hafa nýtt sér þetta nýja tækifæri.

Flugfrelsi heitir ný og spennandi vara sem Flugfélag Íslands hefur hafið sölu á. "Um er að ræða nokkurs konar klippikort sem hentar vel þeim sem eru mikið á ferðinni innanlands," útskýrir Eva Björk Guðjónsdóttir, deildarstjóri þjónustuvers Flugfélags Íslands.

 

Eva Björk  Flugfrelsi er ætlað fólki sextán ára og eldra. Þá eru keyptir sex flugleggir á sérstöku tilboðsverði en Flugfrelsi kostar 64.500 krónur sem gera 10.750 krónur fyrir hvern fluglegg. "Þá eru skilmálar Flugfrelsisins einnig mjög góðir. Til dæmis er enginn bókunarfyrirvari og farið er endurgreitt að fullu ef afbókað er og látið vita fyrir brottför," útskýrir Eva Björk.

Hún útskýrir að Flugfrelsiskortin virki svipað og klippikort. "Þegar kortið er keypt fær kaupandinn númer kortsins og það númer er gefið upp þegar flug er bókað og það flug svo dregið af inneign á kortinu," lýsir hún.

Eva Björk segir sölu Flugfrelsisins fara vel af stað og því ljóst að þessi nýjung leggst vel í viðskiptavini Flugfélags Íslands. "Við höfum líka ákveðið að bjóða upp á Flugfrelsi á tilboðsverði út janúar," segir Eva Björk en á tilboðinu kostar Flugfrelsiskortið 59.850 krónur, eða 9.975 krónur flugleggurinn.

Afsláttarkjör fyrir börn og unglinga

Flugfrelsi er byggt á eldri vöru sem hefur verið í boði hjá Flugfélagi Íslands. Flugfélag Íslands hefur til dæmis síðan 2005 boðiðafsláttarkjör fyrir börn sem fljúga reglulega ein á milli landshluta. "Við köllum þessa krakka Flugkappa," segir Eva Björk glaðlega. Afslátturinn fæst með því að foreldrar eða forráðamenn kaupa kort með tíu flugleggjum á afsláttarkjörum. "Þessi kort eru mjög vinsæl og eru Flugkapparnir orðnir margir."

Árið 2008 bætti Flugfélag Íslands síðan við nýrri vöru, SMU (sem þýðir: súper mikilvægur unglingur) sem er inneignarkort með sex flugleggjum. "SMU er ætlað fyrir tólf til sextán ára unglinga. Börnin verða unglingar og unglingarnir verða fullorðnir og fljótlega fór Flugfélag Íslands að fá fyrirspurnir um sambærileg afsláttarkjör fyrir fullorðna fólkið og þá varð Flugfrelsi til," segir Eva Björk og er ánægð með frábærar viðtökur.

Hægt er að kaupa og fá allar upplýsingar um Flugfrelsi á heimasíðu Flugfélags Íslands.

26.1.2012Niðurstöður könnunar Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna sumarið 2011

Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10,2 nætur á Íslandi sumarið 2011 og ferðuðust langflestir (79,6%) á eigin vegum. Tveir af hverjum þremur höfðu bókað ferðina innan fjögurra mánuða fyrir brottför og við ákvarðanatökuna höfðu langflestir (75,4%) aflað sér upplýsinga um Ísland á netinu.

 

Bílaleigubíll var sá samgöngumáti sem flestir (46,0%) nýttu til ferða sinna um landið en vegakerfið er einn af þeim þáttum sem margir ferðamenn töldu að mætti bæta.

 

Ferðin stóðst væntingar flestra og töldu langflestir (79,1%) líklegt að þeir myndu ferðast til Íslands aftur í framtíðinni og það að sumri til.

 

Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun sem Ferðamálastofa fékk MMR til að framkvæma meðal erlendra ferðamanna sumarið 2011.

Markmið könnunarinnar
Markmiðið með könnuninni var að afla upplýsinga um erlenda ferðamenn á Íslandi, aðdragandann að Íslandsferðinni, ferðahegðun þeirra á Íslandi, eyðsluhætti og viðhorf þeirra til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu.

 

Um var að ræða netkönnun en netföngum var safnað með skipulögðum hætti á brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Norrænu ferjunnar á Seyðisfirði á tímabilinu 5. júlí-31. ágúst 2011. Úrtakið var 4.545 manns og var svarhlutfallið 51,9%.

 

Lesa meira á vef ferðamálastofu


6.1.2012100 milljón króna hækkun gjalda á innanlandsflug

Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands


100 milljón króna hækkun gjalda á innanlandsflug
Á kynningarfundi með notendum innanlandsflugskerfisins í gær voru kynntar gífurlega miklar hækkanir á notendur innanlandsflugvalla. Þannig munu lendingargjöld á Reykjavíkurflugvelli hækka um 72% og farþegagjöld á sama flugvelli hækka um 71%, auk þess mun flugleiðsögugjald hækka um 22%. Samtals munu þessar hækkanir þýða yfir 100 milljóna króna kostnaðaraukningu fyrir Flugfélag Íslands á þessu ári. Boðaðar hafa verið frekari hækkanir á næsta ári sem mun, ef af verður þýða aftur hækkun uppá 150 milljónir króna.


Hækkanir undanfarinna ára hafa verið verulega íþyngjandi og er nú svo komið að á undanförnum 3 árum hafa gjöld sem eingöngu tengjast notkun flugvalla í innanlandskerfinu tvöfaldast eins og sjá má meðfylgjandi töflu. Þannig greiddi Flugfélag Íslands árið 2009 um 207 milljónir króna í farþega og lendingargjöld en áætla má að á árinu 2012 verði þessi kostnaður um 443 milljónir króna og eru þá meðtalin flugleiðsögugjöld og kolefnisgjald en þau gjöld eru ný gjöld sem ekki voru til árið 2009.

 

Auk ofangreindra gjalda bætist á flugið frá síðustu áramótum svokallað útblásturgjald undir hatti hins samevrópska ETS (Emission Trading Scheme) kerfis. Ekki er tekið tillit til þessara álaga með því að fella niður kolefnisgjaldið á móti og mun það vera einstakt að rukkað sé umhverfisgjald bæði þegar eldsneyti fer á flugvélar og síðan aftur þegar notkun er lokið.


Eftir samdrátt í farþegaflutningum innanlands í kjölfar hrunsins 2008 var á árinu 2011 farið að nást nokkuð jafnvægi í flutningum, það er hinsvegar ljóst að með þessum fyrirhuguðu gjaldahækkunum er verið að kollsteypa framtíð innanlandsflugsins. Innanlandsflugið er eina almenningssamgöngukerfið á milli landshluta sem notað er að einhverju marki auk þess að vera mun umhverfisvænni en helsti valkostur farþega sem er einkabíllinn.


Flugfélag Íslands skorar því á stjórnvöld að endurskoða þessar miklu hækkanir, samneyti landsbyggðar og höfuðborgar mun ekki geta vaxið og dafnað þar sem hagkvæmar og góðar samgöngur eru lykilþáttur í slíkri vegferð.

Tafla yfir hækkun opinberra gjalda

Opinber gjöld samtals
         
milljónir króna
2009
2010
2011
2012 áætlun
Farþegaskattar
146
141
174
240
Lendingargjöld
61
77
95
123
Leiðarflugsgjald
 
9
37
50
Kolefnisgjald
 
17
30
30
Samtals
207
244
336
443
Hækkun í % m.v. 2009
--
18%
62%
114%
Fækkun farþega m.v. 2009
 
-6%
-2%
-2%

23.12.2011Opnunartími ferðaþjónustufyrirtækja á höfurborgarsvæðinu yfir hátíðirnar

Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík birtir yfirlit um opnunartíma þjónustuaðila í ferðaþjónustu um jól og áramót.

 

Þetta yfirlit gagnast bæði íslendingum sem erlendum ferðamönnum.

 

Listinn er aðgengilegur á www.visitreykjavik.is, en hér er tengill á listann:

http://www.visitreykjavik.is/Portaldata/1/Resources//Xmas-2011-2012_A(09.12).pdf

21.12.2011Heildarferðaneysla innanlands rúmlega 184 milljarðar króna

Hagstofa Íslands gefur nú út Hagtíðindi um ferðaþjónustureikninga fyrir árið 2009-2011 en þeir hafa það hlutverk að meta efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu fyrir þjóðarbúskapinn. Í ritinu er birt heildstætt yfirlit yfir ferðaþjónustu árið 2009 en jafnframt áætlun um þróun ferðaþjónustunnar innanlands á árunum 2010 og 2011.


Helstu niðurstöður eru þessar:

  • Landsframleiðsla frá framleiðsluhlið dróst saman um 7,9% árið 2009 en ferðaþjónusta nokkru minna, um 6,8%, sem skýrir 1,3% hærra hlutfall greinarinnar í vergri landsframleiðsla árið 2009.
  • Heildarumsvif fyrirtækja í ferðaþjónustu árið 2009 námu ríflega 230 milljörðum króna eða sem svarar rúmlega 15% af vergri landsframleiðslu og er þá búið að áætla umsvif íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands.
  • Heildarferðaneysla innanlands á árinu 2009 var rúmlega 184 milljarðar króna eða sem svarar rúmlega 12,3% af vergri landsframleiðslu.
  • Ferðaneysla innanlands skiptist þannig að kaup erlendra ferðamanna voru rúmir 111 milljarðar, ferðaneysla heimila var um 64 milljarðar og kaup fyrirtækja og opinberra aðila námu um átta milljörðum króna.
  • Um 61% af umsvifum innlendrar ferðaþjónustu á árinu 2009 má rekja til erlendra ferðamanna sem er tæplega 6% hærra hlutfall en á árinu 2008. Á árinu 2003 var þetta hlutfall 53% þannig að vægi þeirra í innanlandsferðaþjónustu hefur aukist nokkuð.
  • Árið 2009 voru gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum 158 milljarðar króna. Þar eru meðtalin umsvif íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands. Ferðaneysla erlendra ferðamanna innanlands nam rúmum 111 milljörðum króna en rúmir 46 milljarðar króna eru tekjur vegna ferðamanna utan Íslands.
  • Árið 2009 er áætlað að tæplega 8.500 manns hafi starfað við ferðaþjónustu, um 5,2% af störfum alls.
  • Vöru- og þjónustuskattar af ferðaþjónustu námu rúmum 13 milljörðum króna árið 2009.
  • Gera má ráð fyrir að útgjöld erlendra ferðamanna hafi verið liðlega 117 milljarðar króna á árinu 2010 eða rúmlega 5% hærri en á árinu 2009. 
  • Á tímabilinu janúar til júní 2011 fjölgaði erlendum ferðamönnum sem fara frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar um tæplega 21%. Á sama tíma má gera ráð fyrir að útgjöld erlendra ferðamanna hér innanlands hafi aukist um tæp 16%.



Nánari upplýsingar á vef Ferðamálastofu:
http://www.ferdamalastofa.is/Category.mvc/DisplayElement?catid=782&moduleid=220&sid=7765

Nánari upplýsingar á heimasíðu Hagstofu Íslands:
https://hagstofa.is/?PageID=421&itemid=f6fd551f-dad6-4c4c-aa73-91b7af3f182a

21.12.2011Company Exposure in TGR Webisode - Behind The Line

Flugfélag Íslands vinnur markvisst að því að styrkja Íslands sem vetraráfangastað.

 

Einn liður í því var að fá til landsins hóp frá TGR (www.tetongravity.com) til að kynna landið betur.

Smellið hér til að sjá  Nick Martini Hits Sketchy Death Rail.

15.12.2011Auknar álögur á flugfarþega

Samkvæmt frétt MBL eiga álögur á flugfarþega enn að aukast eins og fram kemur í samgönguáætlun til næstu fjögurra ára sem innanríkisráðherra kynnti í gær.

 

Flugfélagi Íslands finnst þetta miður að það sé enn verið að auka álögur á innanlandsflugið. Innanlandsflug á Íslandi sinnir grunn starfsemi í samgöngumálum okkar Íslendinga og mikilvægt að álögur á innanlandsflugið hækki ekki mikið umfram það sem það er í dag.

Nánar um frétt mbl.is um málið:

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/12/15/haerri_lendingargjold_skili_250_milljonum/

15.12.2011Flugfélag Íslands einfaldar sýn á nettilboð

Flugfélag Íslands hefur fengið ábendingar frá viðskiptavinum um að fá einfaldari sýn á nettilboð í bókunarvél. Flugfélag Íslands hefur því í framhaldinu gert breytingu þannig að áður voru 7 verðklassar sýnilegir í bókunarvél en eru frá og með deginum í dag einungis 5. Þrír flokkar Nettilboða voru sameinaði í 1 flokk.

Netfargjald, Nettilboð og Sértilboð hafa verið sameinuð í einn flokk sem heitir núna Nettilboð þar sem sést alltaf lægsta fargjald hverju sinni.sjá hér:

 

Einföldun á fargjöldum

 

Viðskiptavinir voru margir að tala um að það væri erfitt að leita eftir nettilboðum en með þessari breytingu telur Flugfélag Íslands að það ætti að vera auðveldara og markvissara fyrir viðskiptavini að finna nettiboð samkvæmt þessari breytingu.

Flugfélag Íslands er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki og því er eins og áður eru allar ábendingar vel þegnar.

kveðja,
Starfsfólk Flugfélags Íslands

 

15.12.2011Tré í burtu úr Öskjuhlíð

Flugmálayfirvöld hafa í tvo og hálfan mánuð óskað samþykkis Reykjavíkurborgar fyrir því að sagað verði ofan af sumum hæstu trjánum í Öskjuhlíð eða þau felld.

 

Ekki hefur orðið af því en við skulum vona að það fáist leyfi fljótt.

 

Nánar um frétt á Visi.is
http://www.visir.is/flugvallarmenn-vilja-tre-burt-ur-oskjuhlid/article/2011712099861

15.12.201185 prósent landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni

85% landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni

 

Sjá nánar frétt á visir.is

15.12.2011Mikill meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri

Samkvæmt skoðanakönnun Stöðvar2 vilja 80% borgarbúa hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni. Þetta eru ánægjulegar niðurstöður fyrir Flugfélag Íslands.

 

Sjá nánar.
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTVB819892D-CF0A-46C8-9D02-423BD9764C46

15.12.2011Vilja reisa flugstöð en fá ekki svör

Það var tekið viðtal við Árna Gunnarsson framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands á Stöð2 um nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli.

 

Hægt er að sjá ný drög að teikningum af flugstöð í fréttinni. Sjá nánari upplýsingar í frétt Stöðvar2:


http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV7765F80F-65A6-48D1-B973-AC2F3289080E

9.12.2011Fjöldi ferðamanna í nóvember

Fjöldi ferðamanna í nóv 2011

 

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 22.969 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum nóvembermánuði eða um 1700 fleiri en í nóvember á síðasta ári.

 

Nóvembermánuður í ár er sá þriðji fjölmennasti frá því talningar hófust.

18.11.2011Ísland allt árið

Flugfélag Íslands vinnur í því reglulega að lengja ferðatímabilið. FÍ tók þátt í einu slíku verkefni sem leggur áherslu á vetrar ferðamennsku. 

 

Afrakstur af þessu verkefni er hægt að sjá í eftirfarandi myndbandi - sem er af Tröllaskaga við Eyjafjörð.

http://www.tetongravity.com/videos/Iceland-Air-Behind-The-Line-Season4-Episode2-1657809.htm

18.11.2011Kauptu jólagjafabréf á netinu

Flugfélag Íslands hefur hafið sölu á hinum gríðalega vinsælu jólagjafabréfum. Flugfélag Íslands bíður nú viðskiptavinum í fyrsta skipti möguleikanum á því að kaupa jólagjafabréfin beint af heimasíðu - www.flugfelag.is.

 

Jólagjafabréf 420

 

Ein önnur nýjung er að einnig er hægt að kaupa jólagjafabréf fyrir börn, því nokkur eftirspurn hefur verið eftir því hjá viðskiptavinum Flugfélags Íslands.

 

Verð fyrir fullorðna er kr.16.900 fram og tilbaka með sköttum. Verð fyrir börn er kr. 8.500 fram og tilbaka með sköttum. Jólagjafabréfin gilda á alla áfangastaði Flugfélags Íslands innanlands.

 

Einnig verður hægt að kaupa gjafabréfin í gegnum síma 5703030 eins og áður.

 

Vonast Flugfélag Íslands til að þessi nýjung, að það sé hægt að kaupa gjafabréfið beint af heimasíðunni, sé þér sem viðskiptavini til meiri þæginda.

17.11.2011Jákvæðni í garð Íslands á World Travel Market

Íslandsstofa tók þátt í hinni árlegu World Travel Market ferðasýningu í London dagana 7-10. nóvember.

 

Sýningin var mikil að vöxtum að venju.

 

Sýningarbásar voru um 700 talsins og þar voru samankomnir fulltrúar 5.000 fyrirtækja frá öllum heimshornum.

Áætlað að um 55.000 fagaðilar hafi sótt sýninguna að þessu sinni.

Í frétt á vef Íslandsstofu kemur fram að mikil jákvæðni var í garð Íslands og Íslandsferða og sögðu ferðasöluaðilar á staðnum frá mikilli aukningu í bókunum á ferðum til Íslands, sem er talin vera tilkomin m.a. vegna aukins aðdráttarafls Norðurljósanna á Íslandi.

 

2.11.2011Ísland og Reykjavík á toppnum hjá Lonely Planet

Ísland er á toppnum hjá lesendum hinnar heimsþekktu ferðaútgáfu Lonely Planet sem áfangastaður ársins 2012. Jafnframt er Reykjavík sú borg sem er í efsta sæti hjá fólki sem borg ársins 2012.

 

Lonely Planet gefur árlega út ritið "Best in Travel" þar sem taldir eru upp vænlegustu kostirnir í ýmsum flokkum ferðaþjónustu. Útgáfunnar er jafnan beðið með miklum spenningi enda þykir mikill heiður að ná inn á topp 10 listann í einhverjum flokki. Skemmst er að minnast að Vestfirðir náðu inná topp 10 listann fyrir árið 2011 sem vænlegasti áfangastaðurinn.

 

Val lesenda er einn flokkanna sem eru í boði og sá sem er hvað eftirsóttastur. Að bæði Ísland og Reykjavík skuli verma toppsætin hjá lesendum fyrir komandi ár er frábær árangur og hefur gríðarlegt auglýsingagildi þar sem milljónir fólks lesa þau rit sem Lonely Planet gefur út eða heimsækja vef fyrirtækisns. Sigur Íslands er líka ótrúlega öruggur þar sem nær einn af hverjum þremur velja landið.
Sjá umfjöllun Lonely Planet um valið

21.10.2011Stærsti dagur ársins

Alls eiga um 1700 manns bókað farm eð vélum Flugfélags Íslands í dag ! "Okkur virðist sem þetta ætli að verða stærsti dagur ársins. Þetta er langt yfir öllu meðaltali," segir Ingi Þór Guðmundsson forstöðumaður sölu- og markaðssviðs FÍ

14.10.2011Nýjung - Sala á dagsferðum

Flugfélag Íslands hefur tekið í notkun nýjung nýjung - sölu á dagsferðum á netinu. Frá með í dag, föstudeginum 14.október verður hægt að bóka allar dagsferðir í gegnum heimasíðu Flugfélags Íslands, flugfelag.is.

Flugfélag Íslands hefur verið með dagsferðir í sölu í mörg ár og hafa þær aðallega verið vinsælar hjá erlendum ferðamönnum. Aukin eftirspurn hefur verið innanlands í dagsferðir og aðrar pakkaferðir nú geta farþegar bókað sig sjálfir og það opnar eins og gefur að skilja fleiri möguleika fyrir einstaklinga og hópa sem vilja ferðast innanlands.

Endilega kíkið inná flugfelag.is og skoðið.(/serferdir/dagsferdir)

Til að gefa ykkur smá innsýn í hvernig þetta er gert að þá getið þið skoðað eftirfarandi:

Farþegin velur sérferðir
Haus dagsferðir


Næst er valið dagsferðir: þá birtist þessi listi. Þegar búið er að velja úr listanum að neðan birtist lýsing um ferðina og bókunarvélin.
nav dagsferðir


Eins og til dæmis Lake Myvatn sem er í boði allan ársins hring.

Lake myvatn dagsferð

5.10.2011Ferðamenn yfir 50 þúsund í september

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 51.576 erlendir ferðamenn frá landinu í september síðastliðnum eða tæplega 11 þúsund fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 26,2% á milli ára. Um er að ræða lang fjölmennasta septembermánuð frá upphafi mælinga.

Einstök markaðssvæði
N-Ameríkönum fjölgar verulega á milli ára eða um 42,8%. Mið- og S-Evrópubúum fjölgar um 27,4%, Norðurlandabúum um 22,5% og ferðamönnum frá löndum sem eru flokkuð undir "Annað" um 20,9%. Bretum fjölgar talsvert minna eða um 11,8%.

Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Norðmenn ríflega þriðjungur ferðamanna
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í september frá Bandaríkjunum (16,0%), Þýskalandi (11,4) og Noregi (10,2%). Ferðamenn frá Bretlandi (8,1%), Danmörku (7,6%) og Svíþjóð (6,6%) fylgdu þar á eftir. Samanlagt voru þessar sex þjóðir 60% ferðamanna í september.

Ferðamenn orðnir jafn margir og allt árið 2010
Það sem af er ári hafa 458.060 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða jafnmargir og allt árið 2010. Um 62 þúsund fleiri ferðamenn hafa komið til landsins frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra þegar brottfarir voru 385 þúsund talsins. Aukningin nemur 18,9% á milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað frá öllum mörkuðum. N-Ameríkanar hafa að miklu leyti borið uppi aukningu ársins en þeim hefur fjölgað um 50,3% frá því í fyrra, Norðurlandabúum hefur fjölgað um 16,7%, Mið- og S-Evrópubúum um 13,9%, Bretum um 9,1% og ferðamönnum frá öðrum löndum um 13,2%.


Ferðir Íslendinga utan
Brottförum Íslendinga í september hefur fjölgað um 10,8% frá því í fyrra, voru 30.809 í september í ár en 27.808 í fyrra. Frá áramótum hafa 260.201 þúsund Íslendingar farið utan, 19% fleiri en á sama tímabili árinu áður þegar brottfarir mældust tæplega 219 þúsund.

5.10.2011Hin árlega sundkennsla 11 ára krakka frá Grænlandi

Þessi hressi hópur var á vegum félagsins Kalaks sem styrkir 11 ára börn frá austurströnd Grænlands til sundkennslu á Íslandi ár hvert. Flugfélag Íslands er einn af styrktaraðilum í þessu verkefni. Voru þau víst mjög ánægð með dvölina og var mikið og margt bralla m.a heimsókn til forseta á Bessastöðum.

 

Sundhópur

19.9.2011Íslendingar skemmta sér innanlands

Hlutfall landsmanna sem ferðuðust innanlands í sumar voru 80% og er það svipað og  á síðasta ári.  Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallups og var sagt fá í fréttum RÚV. 

16.9.2011Til Hamingju og takk

TIL HAMINGJU ... og takk!

 

Ég óska öllum aðstandendum Inspired by Iceland átaksins til hamingju með gullverðlaun og Grand Prix verðlaun í samkeppni um evrópsku Effie verðlaunin. Íslandsstofa og Íslenska auglýsingastofan tóku á móti verðlaununum í Brussel í gær fyrir árangursríkustu auglýsingaherferð ársins 2010 og áhrifamestu notkun á samfélagsmiðlum. Breska almanntengsla- og auglýsingastofan Brooklyn Brothers, sem var samstarfsaðili í verkefninu, var valin besta auglýsingastofa Evrópu fyrir þátt sinn í Inspired by Iceland.


Þetta er mikil viðurkenning til fjölmargra samstarfsaðila, sem áttu hlut að Inspired by Iceland, til iðnaðarráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland Express og yfir 90 fyrirtækja og markaðsstofa í ferðaþjónustu sem tóku þátt í því. Einnig á auglýsingastofan Fíton sérstakar þakkir skildar fyrir vinsælt myndband og mörg önnur miðlunarfyrirtæki fyrir framúrskarandi fagmennsku.


Þá vil ég færa almenningi á Íslandi sérstakar þakkir fyrir sinn virka þátt í átakinu. Niðurstaðan er ekki eingöngu sú að það tókst með eftirminnilegum hætti að bjarga ferðasumrinu 2010 eftir truflun á flugsamgöngum í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli. Átakið hefur einnig átt stóran þátt í gríðarlegri fjölgun ferðamanna á árinu 2011 - Íslandsmetið verður örugglega slegið! Við munum síðan byggja á grunni Inspired by Iceland þegar við hefjum nýja markaðssókn sem beinist að því að fjölga ferðamönnum utan hins hefðbundna sumartíma.


Það eru spennandi og "inspired" tímar framundan!
Katrín Júlíusdóttir
ferðamálaráðherra

22.8.2011Icelandair flýgur til Akureyrar næsta sumar um Keflavíkurflugvöll

Næsta sumar mun Icelandair bjóða upp á flug til og frá Akureyri um Keflavíkurflugvöll á ýmsa áfangastaði sína í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bóka flugið og innrita sig alla leið. Flogið verður allt að fjórum sinnum í viku frá 7. júní til 30. september 2012.


Góð tenging við helstu áfangastaði Icelandair


Brottför frá Akureyrarflugvelli verður klukkan 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli klukkan 15.20. Tímasetningin gerir það að verkum að fjölmargir áfangastaðir Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi, til dæmis New York, Boston, Washington, Orlando, Seattle og Halifax í Norður-Ameríku og London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Amsterdam, Brussel og Osló í Evrópu.

 

Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar er klukkan 16.20 og lending á Akureyri kl. 17.10. Þannig skapast góð tenging við komutíma frá helstu áfangastöðum Icelandair í Evrópu.

 

Akureyrarflugið er bókanlegt sem hluti af flugi Icelandair til og frá Íslandi og mun félagið leigja Fokker 50 flugvél af systurfyrirtækinu Flugfélagi Íslands til þess.


Styrkir undirstöður ferðaþjónustu á Norðurlandi


"Það er spennandi að bæta Akureyri sem nýjum áfangastað inn í leiðakerfið okkar og tengiflugið sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll.

 

Með þessum hætti erum við að opna nýja leið fyrir ferðamenn frá fjölmörgum öðrum borgum í leiðakerfi okkar til Akureyrar. Akureyri opnast í bókunarkerfum um allan heim sem áfangastaður Icelandair og við teljum okkur vera að færa Akureyri og perlur Norðurlands nær erlendum ferðamönnum og styrkja þannig undirstöður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi," segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

 

"Við teljum líka að það séu mikil þægindi fólgin í því fyrir heimamenn og ferðamenn að geta innritað sig alla leið frá flugvellinum á Akureyri. Þannig teljum við að þetta nýja flug geti bæði nýst íbúum Norðurlands sem og erlendum ferðamönnum."


Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri segir Akureyringa fagna allri uppbyggingu í ferðaþjónustu á Íslandi og sérstaklega á Akureyri og Norðurlandi.

 

"Það felast  mikilvægt tækifæri í því að Akureyri og Akureyrarflugvöllur tengist bókunar- og leiðarkerfi Icelandair. Akureyri og Akureyrarflugvöllur verður sýnilegri sem áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn og í því eru tækifæri til frekari uppbyggingar og markaðssetningar svæðisins", segir hann.

 

Eiríkur leggur áherslu á að tenging Akureyrar- og Keflavíkurflugvallar dragi síður en svo úr mikilvægi Reykjavíkurflugvallar og staðsetningar hans í Vatnsmýrinni fyrir innanlands- og sjúkraflug. "Akureyrarbær óskar Icelandair velfarnaðar í rekstri þessarar flugleiðar og væntir þess að allir ferðaþjónustuaðilar á Norður- og Austurlandi njóti góðs af", segir Eiríkur Björn Björgvinsson.

http://www.icelandair.is/information/media/newslist/detail/item529596/Icelandair_flygur_til_Akureyrar_naesta_sumar_um_Keflavikurflugvoll/

12.7.2011Fjölmennasti júnímánuður frá upphafi

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 65.606 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í júní síðastliðnum eða ríflega 11 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 20,6% milli ára og hafa ferðamenn aldrei verið fleiri í júnímánuði.


Markaðssvæði og þjóðerni

Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá 50,4% aukningu frá N-Ameríku, 17% aukningu frá Norðurlöndunum, 15,7% frá Mið- og Suður Evrópu, 7,6% frá Bretlandi og 12% frá löndum innan og utan Evrópu sem eru flokkuð saman undir ,,Annað".

 

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (17,7%) og Þýskalandi (14,6%) en þar á eftir fylgdu ferðamenn frá Noregi (8,1%), Danmörku (6,9%), Bretlandi (6,6%), Svíþjóð (6,1%) og Frakklandi (6,0%). Samanlagt voru þessar sjö þjóðir tæplega tveir þriðju ferðamanna í júní. Lesa meira

4.7.2011Flugvél í sumarbúning

Ein af vélum Flugfélags Íslands hefur verið klædd í sumarfötin. Starfsfólk Flugfélags Íslands vonar að farþegar hafir ánægju af.

Mynd1

Mynd2

1.7.2011Breyting á barnafargjöldum

Kæri viðskiptavinur,
Frá og með deginum í dag,1.júlí 2011 mun taka gildi breyting á uppbyggingu barnafargjalda hjá Flugfélagi Íslands. Fargjöld verða meira breytileg eftir bókunarstöðu hverrar vélar í stað þess að vera fast fargjald. Nú bókast börnin á það fargjald sem er laust og fá börnin(child) 50% afslátt af fargjaldinu og ungabörn(infant) 90% afslátt.


Flestir þekkja vel uppbyggingu verðlista Flugfélags Íslands. Ef það er mikið laust á vélinni þá fá börnin ódýr sæti en ef það eru fá sæti eftir á vélinni þá er verðið fyrir börnin hærra. Börnin munu því í einhverjum tilvikum fá ódýara fargjald en var í boði áður og í einhverjum tilvikum dýrara. Það gildir því sama regla um börn og fullorðna - eftir því sem meiri fyrirvari er á bókun, því hagstæðara verð er í boði.

 

Hér eru nokkrir punktar sem er gott að vita:

  • Skilmálar fargjaldsins gildir eins fyrir börn og fyrir fullorðna. Ungabörn(infant) greiða 10% af verði fargjaldsins, annars gilda sömu reglur um það og fyrir börnin.
  • Ef barn er bókað á hagstæðu tilboðsfargjaldi að þá má breyta upp í næsta fargjald sem er laust á.
  • Ef farþegi er að bóka sig á Flugkorti - er hægt að velja lægsta fargjald sem er til fyrir barnið ef Flugkortshafi vill það. Flugkortshafinn getur líka ákveðið að setja barnið á Forgangssæti og þá fær farþeginn afsláttinn á Flugkortinu ásamt þeim möguleika að breyta og fá endurgreitt, sem eru hluti af fríðindum Flugkortsins.
  • Ef bókaður er fullorðinn með barn og aðeins eitt sæti er laust á lægsta verðflokk getur Flugfélag Íslands mælt með því að bóka fullorðna á lægri klassann og barnið á hærri, t.d. ef aðeins eitt laust sæti er á tilboðsfargjaldi þá bókast fullorðni á tilboðsfargjaldi og barnið á hærra fargjaldi.


Börn og ungabörn eru stór hluti af farþegum Flugfélags Íslands þar sem þau ferðast með foreldrum sínum eða ein sér. Því leggur Flugfélag Íslands áfram áherslu á að gefa börnum og barnafjölskyldum áfram góð kjör á barnafargjöldum.  Vonast Flugfélag Íslands að þessi nýju kjör fyrir börn verði betri en áður fyrir börn og fjölskyldur.


Kveðja,

Starfsfólk Flugfélags Íslands

20.6.2011Breytingar hjá Netklúbbi Flugfélags Íslands

Við breytum til og aukum sætaframboð nettilboða

3.6.2011Fjöldi ferðamanna í mai

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 37.212 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í maí síðastliðnum og er um að ræða einn af fjölmennustu maímánuðum frá upphafi talninga. Fjöldi ferðamanna hefur þrívegis áður verið um og yfir 35 þúsund í maí eða árin 2007, 2008 og 2009.


Gosið í Eyjafjallajökli hefur áhrif á samanburð

Þegar bornar eru saman tölur frá maí í fyrra þarf að hafa í huga að þá hafði gosið í Eyjafjallajökli veruleg áhrif á umferð til og frá landinu. Því eru sveiflur miklar á milli ára. Um er að ræða 31,5% aukningu ferðamanna frá því í maí á síðasta ári, en að meðtöldum 1.300 brottförum í maí í fyrra um Akureyrarflugvöll er aukningin 25,7%. Gosið í Grímsvötnum virðist hins vegar ekki hafa haft umtalsverð áhrif á flugsamgöngur til og frá landinu.
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í maí frá Bandaríkjunum (13,8%), Noregi (12,3%), Danmörku (9,2%), Bretlandi (9,1%), Þýskalandi (8,2%) og Svíþjóð (7,9%). Samanlagt voru Norðurlandabúar um þriðjungur ferðamanna í maí.


Umferðin frá áramótum

Alls hafa 141 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 24.400 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Að viðbættum 2.300 brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll í apríl og maí á árinu 2010 nemur fjölgunin 18,6%. Aukning er frá öllum mörkuðum, langmest frá N-Ameríku eða 46,2%. Þar næst kemur Mið- og Suður Evrópa með 26,8% aukningu og í þriðja sæti koma Norðurlöndin með tæplega 27% aukningu. Aukning frá Bretlandi mælist minni eða tæp 8% og um 11% frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir ,,annað".


Brottfarir Íslendinga

Brottförum Íslendinga fjölgaði um þriðjung í maí frá því í fyrra, voru um 31 þúsund í ár en um 23 þúsund í fyrra. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um tæplega fjórðung í samanburði við sama tímabil árið 2010.


Mesti háannatími ferðaþjónustunnar fer í höndFramundan eru stærstu ferðamannamánuðir ársins. Talsverðar væntingar eru til sumarsins og er talið að met verði slegið í komum erlendra ferðamanna til landsins. Ísland hefur fengið mikla umfjöllun í tengslum við gosið í Grímsvötnum, sem að lang mestu leyti virðist ætla að skila sér á jákvæðan hátt fyrir ferðaþjónustuna.


Á vef Ferðamálastofu má sjá nánari skiptingu úr talningum Ferðamálastofu eftir þjóðerni og markaðssvæðum.

31.5.2011Útsýnisflug með 100 manns

Flugfélag Íslands fór í tvö útsýnisflug eftir hádeg á sunnudeginum 29. mai

 

Uppselt var i báðar ferðirnar og heppnuðust þær mjög vel.  Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli í austurátt, flogið yfir Þingvelli, Gullfoss og Geysi, og síðan útsýnisflug yfir höfuðborgarsvæðið.

 

Meðfylgjandi myndir voru teknar í fyrra fluginu en þar var aldursforsetinn um borð Jón Ormsson sem er nýorðinn 91 árs.

 

 

Aldursforsetinn

Yfir Kópavogi og Reykjavík

Kópavogur og Reykjavík

Yfir Grafarvogi

Yfir Grafarvogi

Almannagjá

Almannagjá

27.5.2011Tvær nýjar dagsferðir í boði

Flugfélag Íslands býður fjölbreytt úrval dagsferða til allra áfangastaða innanlands og til Grænlands.  Í sumar verða tvær nýjar dagsferðir í boði. Allar upplýsingar um ferðirnar er að finna á www.flugfelag.is og í síma 570 3030.

 

NÝTT !

Hvalaskoðun á Húsavík

Frábær dagsferð fyrir þá sem vilja fara í hvalaskoðun á Húsavík og skoða hið eintaka Hvalasafn.  Flogið er frá Reykjavík til Akureyrar og þaðan er farið með rútu til Húsavíkur og Hvalasafnið heimsótt.  Það gefst tækifæri á að skoða beinagrindur þessara risa hafsins ásamt ýmsum öðrum fróðleik.   Eftir hádegið er haldið í þriggja tíma hvalaskoðunarferð á eikarbát um Skjálfandaflóa. Að þeirri ferð lokinni er stoppað hjá Goðafossi og sá fagri og sögulegi foss landsins skoðaður.  Haldið til Akureyrar og flogið aftur til Reykjavíkur.

Þessi ferð er í boði daglega frá 1. apríl - 17. júní og frá 1. - 31. september.

Verð kr. 49.640 pr. mann

Sjá nánar

 

 

NÝTT !

Gældu við bragðlaukana - Sælkeraferð norður í einn dag

Hér er haldið er um sjó og sveitir Eyjafjarðar og framleiðendur á eyfirsku hráefni heimsóttir. Farið er á vit ævintýra þar sem reynt er á bragðlaukana jafnt sem önnur skilningarvit.


Flogið er frá Reykjavík til Akureyrar og fari í siglingu um fjörðinn,  kræklingarækt skoðuð og komið við í Hrísey þar sem hádegisverður er snæddur í húsi Hákarla Jörundar. Þaðan liggur leið í heimsókn til veiðimanna, fiskverkenda, kjötframleiðenda og bruggara. Smökkuð eru sýnishorn af hinni fjölbreyttu eyfirsku matvæla flóru í því umhverfi sem hún er ræktuð, veidd, alin eða unnin í.  Flogið er til Reykjavikur um kvöldið.

 

Ferðin er upplifun fyrir hvern sælkera og allir ættu að geta notið þeirra kræsinga sem upp á er boðið.   Þessi dagsferð er í boði þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga í júlí og ágúst.

Verð kr. 46.640 pr. mann

Sjá nánar

23.5.2011Staða á flugi 24.05

24.05

Flugi aflýst til Isafjarðar, Kulusuk, Nuuk og Færeyja.

Flug á áætlun til Akureyrar og Egilsstaða.

19.5.2011Starfslok eftir 170 ár

Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands


Í gær var merkisdagur hjá Flugfélagi Íslands en að þá kvaddi Flugfélagið þrjá starfsmenn sína sem unnið hafa samanlagt hjá félaginu í tæplega 120 ár auk þess að veita starfsaldurs viðurkenningu Reyni Bjarnasyni, hlaðmanni eftir 50 ára starf.

 

Kveðju- og heiðurshóf var haldið fyrir starfsmenn í gær og þau sem ljúka nú starfsævinni hjá félaginu.  Þau sem hættu í gær eru: Baldur Þorsteinsson, flugstjóri sem á tæplega 36 ára starfsaldur að baki, Guðmundur Björnsson hlaðmaður sem starfaði í 32 ár og Unnur Kristinsdóttur sem á að baki tæplega 50 ár í starfi.

 

Það er mikil gæfa fyrir Flugfélag Íslands að hafa á að skipa jafn traustum og áreiðanlegum starfsmönnum og raun ber vitni.

 

Starfslok

 

Mynd frá vinstri:  Guðmundur Björnsson, Unnur Kristinsson, Reynir Bjarnason, Baldur Þorsteinsson og Ingigerður Þórðardóttir mannauðsstjóri.

16.5.2011Flugfélag Íslands styrkir Háskólann á Akureyri

Undirritun á samningi á milli FI og HA
Flugfélag Íslands og Háskólinn á Akureyri endurnýjuðu samning sín á milli um eflingu rannsókna við Háskólann á Akureyri til næstu þriggja ára.  Styrkurinn er notaður til að efla Rannsóknarsjóð háskólans.  Flugfélag Íslands leggur Háskólanum á Akureyri þar með lið með fjárhagslegum stuðningi við rannsóknarstarf kennara og sérfræðinga við Háskólann á Akureyri.


Hlutverk Háskólans á Akureyri er að veita nemendum tækifæri til menntunar í metnaðarfullu og alþjóðlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar fræðimönnum sínum umhverfi og aðstöðu til rannsókna og nýsköpunar sem stuðlar að vexti og framþróun íslensks samfélags og veitir inn í það nýjum straumum. Háskólinn leggur áherslu á gagnvirk tengsl við atvinnulífið.

 

Á mynd: Stefán B. Sigurðsson rektor HA og Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri FÍ

13.5.2011Langfjölmennasti aprílmánuður frá upphafi

Langfjölmennasti aprílmánuður frá upphafi


Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 34.333 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í apríl síðastliðnum en þeir hafa aldrei áður farið yfir 30 þúsund í aprílmánuði.

 

Fjölgun í apríl um 34% milli ára
Um er að ræða 40% aukningu um Keflavíkurflugvöll frá því í apríl á síðasta ári. Gosið í Eyjafjallajökli hafði veruleg áhrif á fjölda ferðamanna í apríl í fyrra og eru þar af leiðandi sveiflur miklar í tölunum á milli ára. Um 1.000 erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Akureyrarflugvöll í aprílmánuði í fyrra, þar sem millilandaflug fluttist um tíma til Akureyrar vegna gossins. Raunfjölgun erlendra ferðamanna nemur því um 34% milli ára. Fjölmennustu aprílmánuðir til þessa voru 2007 og 2009 þegar erlendir ferðamenn voru rétt innan við 28 þúsund.

 

Bretar fimmtungur ferðamanna
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í apríl frá Bretlandi eða um fimmtungur ferðamanna (20,8%), einn af hverjum tíu (10,3%) frá Bandaríkjunum  og svipaður fjöldi frá Danmörku (9,8%) og Noregi (9,3%).

Alls hafa 104 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 15.500 fleiri ferðamenn en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 17,5% milli ára. Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá öllum mörkuðum, langmest hefur hún þó verið frá N-Ameríku eða 44%, þar næst kemur Mið- og Suður Evrópa með 27,8% aukningu og í þriðja sæti eru Norðurlöndin með um 17% aukningu. Aukning frá Bretlandi mælist minni eða tæp 8% og tæp 4% frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir ,,annað".

 

Brottfarir Íslendinga
Brottförum Íslendinga fjölgaði um 50% í apríl frá því í fyrra, voru 29 þúsund í ár en 19 þúsund í fyrra. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um fimmtung í samanburði við sama tímabil árið 2009.

 

http://www.ferdamalastofa.is/Category.mvc/DisplayElement?catid=747&moduleid=220&sid=7096

12.5.20111 Vildarpunktur fyrir börnin

Börnin fljúga fyrir 1 Vildarpunkt

Fokker 50

Flugfélag Íslands býður öllum börnum frá 0 - 11 ára upp á einstakt tilboð í maí.

Flug á alla áfangastaði Flugfélagsins innanlands fyrir aðeins
1 Vildarpunkt.

Sölutímabil: 11. maí - 14. maí
Ferðatímabil: 17. maí - 31. maí.

Bókanir í síma 570 30 30

Helstu skilmálar:

  • Gildir fyrir börn 0 - 11 ára.
  • Gildir fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
  • Gildir á alla áfangastaði Flugfélagsins innanlands.
  • Engin þjónustugjöld innheimt fyrir þá sem nýta tilboðið.
  • Takmarkað sætaframboð.
  • Fullorðnir mega vera bæði á almennu fargjaldi eða Vildarfargjaldi.
  • Skattar ekki innifaldir.

6.5.2011Bilun í komum og brottförum

Það er bilun í komum og brottförum, bæði á flugfelag.is og á textavarp.is

 

Við biðjumst velvirðingar á þessu og vonumst til að þetta verði komið í lag um hádegi.

28.4.2011Erlendir ferðamenn í mars álíka margir og í fyrra

Í nýliðnum marsmánuði fóru 26.624 erlendir ferðamenn úr landi um Leifsstöð samkvæmt talningum Ferðamálastofu en um er að ræða svipaðan fjölda erlendra ferðamanna og í sama mánuði árinu áður, segir í frétt frá Ferðamálastofu.

 

Bretar og Bandaríkjamenn fjölmennastir

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í mars frá Bretlandi (21,5%) og Bandaríkjunum (13,9%).

 

Í þriðja sæti komu Norðmenn (8,6%) og fast á eftir fylgdu Danir (8,3%), Þjóðverjar (8,0%), Svíar (7,6%), Frakkar (5,9%) og Hollendingar (4,5%).

 

N-Ameríkönum fjölgar mest Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega aukningu frá N-Ameríku (27,3%) og Mið- og S-Evrópu (14,7%). Norðurlandabúar standa í stað en fækkun er frá Bretlandi (-12,6%) og frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir ,,annað" (11,2%).

 

Alls hafa tæplega 72 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 6.300 fleiri ferðamenn en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 9,6% milli ára.

 

Nánar á vef Ferðamálastofu

18.4.2011Vinningshafar í spilakassaleik Flugfélags Íslands

Flugfélag Íslands óskar eftirfarandi þátttakendum í spilakassaleik innilega til hamingju með vinningana sína, en þau unnu öll gjafabréf með Flugfélagi Íslands. Dregið var úr 51.086 innsendum netföngum.

 

Vinningshafar:

Hjörtur Reynarsson

Bergný Jóna

Ásta Benný Hjaltadóttir

Elín Gautadóttir

Kolbrún Úlfsdóttir

Oddur Friðriksson

Hannes Jónsson

Kristín Jónsdóttir

 

Jafnframt þakkar Flugfélag Íslands öllum þeim sem tóku þátt í leiknum kærlega fyrir þáttökuna.

Búið er að hafa samband við vinningshafa.

28.3.2011Nýr símsvari hjá Flugfélagi Íslands. Eitt númer til að efla þjónustuna

Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands:

Nýr símsvari hjá Flugfélagi Íslands. Eitt númer til að efla þjónustuna

 

Á hverjum degi hringja inn hundruðir viðskiptavina til að fá þjónustu hjá Flugfélagi Íslands. Innleiðing á nýju IP símkerfi hófst fyrir tveimur árum og nú í framhaldi hefur verið ákveðið að taka í notkun nýjan símsvara frá og með þriðjudeginum 29. mars 2011. Nú þurfa viðskiptavinir einungis að muna eitt símanúmer 570 3000.

 

Símsvörun hefur mælst góð í öllum þjónustukönnunum og í síðustu könnun voru 80% viðskiptavina ánægð með þjónustuna og er stefnan að bæta símaþjónustu enn frekar.

Aðrar nýjungar sem Flugfélag Íslands hefur tekið í notkun er SMS kerfi. Þá er sent SMS símskilaboð til viðskiptavina til að upplýsa farþega um bókunarstaðfestingu, ef flug breytist  eða staðfesting á að frakt sending sé komin. Hefur SMS kerfið vakið mikla lukku.

 

Er það von starfsfólks Flugfélags Íslands að nýr símsvari verði til að auðvelda aðgengi og svörun fyrir alla Íslendinga.

 

Eva Björk Guðjónsdóttir

Deildastjóri Þjónustuvers

24.3.2011Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2010

Flugfélag Íslands hefur verið valið Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2010 af Credit Info (áður Lánstrausti).  Tilgangur með viðurkenningu Credit Info er að varpa ljósi á félög sem skara fram úr og geta verið öðrum félögum góð fyrirmynd.  Af 177 félögum sem hlotnuðust þennan heiður Credit Info er Flugfélag Íslands í 41. sæti, en mið er tekið af rekstrarhagnaði undanfarinna þriggja rekstrarára, skilvísi, eiginfjárhlutfalli og verðmæti eigna.  Alls eru á Íslandi 32.000 hlutafélög og erum við hjá Flugfélagi Íslands stolt af því að vera í forystusveit félaga sem efla íslenskt efnahagslíf.

 

Air Iceland has been recognized as one of the Strongest companies in Iceland 2010.  The purpose of the recognition is to highlight companies that have excelled and are exemplary to other companies in Iceland.  Of the 177 recognized companies, Air Iceland was awarded 41st place on Credit Info's list, based on several criterias such as profits for the last three fiscal years, punctuality in payments, equity ratio and asset strength.  In total, there are 32.000 incorporated companies in Iceland, and we at Air Iceland are proud to be among the company leaders in strengthening the Icelandic economy.

23.3.2011Súkkulaði um borð

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að skipta um tegund á súkkulaði sem er í boði um borð.

 

Viðskiptavinum verður boðið upp á hin vinsælu Milka súkkulaðimola. Margir farþegar eru oft á ferðinni og er því gott að bjóða upp á nýja tegund. Vonast Flugfélag Íslands til að nýtt súkkulaði mælist vel fyrir hjá viðskiptavinum.

 

Áfram verður einnig boðið upp á kaffi,te og vatn.

4.3.2011Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands - Lending í Nuuk 04.03.2011

Reykjavík 04.mars 2011

 

Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands

 

Flugvél Flugfélags Íslands hlekktist á í Nuuk

 

Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Reykjavík til Nuuk hlekktist á í lendingu þegar hægra hjólastell vélarinnar gaf sig. Vélin rann út af brautinni á öryggissvæði áður en hún stoppaði. 31 farþegi auk þriggja áhafnameðlima voru um borð en engan sakaði.

 

Flugvélin fór í loftið frá Reykjavík klukkan10:40 og eftir millilendingu í Kulusuk þar sem tekið var eldsneyti var haldið áfram til Nuuk þar sem lent var kl. 13:30 að staðartíma, kl. 16:30 að íslenskum tíma.

4.3.2011Bein útsending frá AEY til UK

Flugfélag Íslands kom að markaðssetningu á norðurlandi í Bretlandi. Það var bein útsending frá AEY til UK.

 

Frægur blaðamaður um ferðamál Simon Calder er með reglulegan þátt og hann var fenginn til Íslands til að gera norðurlandi hátt undir höfði. Hér að neðan er linkur til að hlusta á útvarpsþátt Simon Calder frá því á sunnudaginn - umfjöllun Simons Calder á LBC. 20 mín inn í þáttinn kemur norðurland fyrir.  http://dl.dropbox.com/u/16622937/Iceland_special_-_27_Feb_11.mp3

15.2.2011Yfirvinnubann flugumferðarstjóra

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra.

 

Samkvæmt heimasíðu Félags flugumferðarstjóra gildir yfirvinnubann félagsins frá 14. febrúar og tekur til eftirfarandi tíma sólarhringsins, frá mánudögum til föstudaga 20:00 -07:00 og laugardaga og sunnudaga frá 00:00 - 24:00.

 

 Farþegar sem bókað eiga flug á þessum tímum geta búist við röskun á flugi en leitast verður við að halda þeirri röskun í lágmarki.

 

Farþegar eru hvattir til að fylgjast breytingum á áætlun á textavarpinu eða á heimasíðu Flugfélags Íslands, www.flugfelag.is

14.2.2011Röskun á flugi Flugfélags Íslands vegna yfirvinnubanns

 

Flugumferðarþjónusta ISAVIA hefur sent frá sér tilkynningu um að ekki verði hægt að sinna flugumferðarþjónustu eftir klukkan 20:00 í kvöld til klukkan 07:00 í fyrrmálið vegna manneklu.

 

Vegna þessa hefur Flugfélag Íslands gripið til eftirfarandi ráðstafanna til þess að reyna að minnka óþægindi farþega sem mest:

Flugvél frá Egilsstöðum sem lenda átti á Reykjavíkurflugvelli klukkan 20:25 verður flýtt og lendir í Reykjavík fyrir klukkan 20:00.

Flugvél frá Akureyri sem lenda átti í Reykjavík klukkan 22:10 mun lenda á Keflavíkurflugvelli.

Flugvél Atlantic Airways frá Færeyjum mun lenda og fara til baka til Færeyja frá Keflavíkurflugvelli.

Flugvél frá Nuuk í Grænlandi sem lenda átti klukkan 04:30 í nótt í Reykjavík lendir á Keflavíkurflugvelli.

 

Boðið verður uppá rútuferðir fyrir farþega sem lenda á Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkurflugvallar.

Flugfélag Íslands þykir miður að þessar aðgerðir flugumferðastjóra bitni á farþegum félagsins og mun leggja sig fram við að farþegar verði fyrir sem minnstri röskun vegna þessa.

 

 

Samkvæmt heimasíðu Félags flugumferðarstjóra gildir yfirvinnubann félagsins frá 14. febrúar og tekur til eftirfarandi tíma sólarhringsins, frá mánudögum til föstudaga 20:00 -07:00 og laugardaga og sunnudaga frá 00:00 - 24:00. Farþegar sem bókað eiga flug á þessum tímum geta búist við röskun á flugi en leitast verður við að halda þeirri röskun í lágmarki.

21.1.2011Samningur Flugfélags Íslands um ferðir Grænlensku heimastjórnarinnar

Flugfélag Íslands skrifaði undir samning við Grænlensku heimastjórnina um flug allra starfsmanna ríkisfyrirtækja í vinnuerindum í lok nóvember. Mikil ánægja ríkir í Grænlandi með samninginn og hefur þetta verið mikið í umfjöllun í Grænlenskum fjölmiðlum undanfarið.


Viðtal við Árna Gunnarsson framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands


Viðtal við Fjármálaráðherra Grænlands

Grein í TRAVEL PEOPLE NEWSLETTER - 19JAN2011

 

Grønlands Selvstyre udfordrer Air Greenland

 

AIR GREENLAND udfordres nu af landets egne Selvstyre-myndigheder, der har indgået aftale med Air Iceland, søsterselskab til Icelandair, om transport af Selvstyrets medarbejdere på tjenesterejser til København.

 

Avisen Sermitsiaq meddeler, at Grønlands Selvstyre sparer DKK 1.000 pr. enkeltrejse (o/w) mellem Nuuk og København ved at bruge Air Iceland i stedet for Air Greenland samtidigt med, at fleksibiliteten på billetterne er optimal, idet de med Air Iceland kan ændres helt frem til afrejsedagen!

 

Det er ikke oplyst, hvor mange tjenesterejser til København Selvstyret gennemfører pr. år, men køber Selvstyret eksempelvis 500 t/r-billetter, bliver besparelsen lig med DKK 1 million foruden fordelen ved fleksibiliteten.

 

Vælger Selvstyre-medarbejderne den islandske løsning, flyves med Air Iceland fra Nuuk til Keflavík på Island og derfra videre med Icelandair til København.

 

Ordningen er ikke meget anderledes end, at flere skandinaviske myndigheder har indgået prisaftaler med udenlandske luftfartsselskaber på bekostning af SAS.

14.1.2011Skemmtum okkur innanlands – á skíðum

Meðfylgjandi úttekt blaðamanns á því hvar hagstæðustu skíðaferðirnar er að finna staðfestir það að á Íslandi er að finna frábær skíðasvæði sem og hagstæð kjör á flugi, gistingu og afþreyingu.  Á flestum áfangastöðum Flugfélags Íslands er að finna mjög góð skíðasvæði s.s. Akureyri, Ísafirði og í nágrenni Egilsstaða.  Á öllum þessum stöðum er nú nægur snjór og frábært færi.

 

Flugfélag Íslands hefur boðið mjög hagstæð kjör á flugi og sendir meðal annars út nettilboð á netklúbbinn einu sinni í viku þar sem hægt er að kaupa ódýr sæti á alla áfangastaði.

Í janúar - apríl mun til dæmis verða í boði tilboð á flugi til Egilsstaða, gistingu á Hótel Héraði og skíðapassa á skíðasvæðið í Stafdal á Seyðisfirði.

 

Á Akureyri eru nú í boði skíðarútuferðir í Hlíðarfjall og mun rútan ganga þrisvar á dag, þrjá daga vikunnar í fjallið.

 

Á Ísafirði er frábær aðstaða til gönguskíðaiðkunnar.

 

Flugfélag  Íslands býður hagstæð kjör á flugi til allra áfangastaða.

 

Bókanlegt á www.flugfelag.is

 

Skemmtum okkur Innanlands skíði

5.1.2011400 sæti á kr. 5990 hjá Flugfélagi Íslands í janúar

Flugfélag Íslands býður Íslendingum gríðarlega gott nettilboð í janúarmánuði.  Verðið er einunigs kr. 5.990 aðra leiðina með sköttum og gildiir til / frá Reykjvík, Akureyri, Ísafjarði og Egilsstöðum.  Tilboðið er bókanlegt frá  kl. 10:00 í dag, miðvikudaginn 5. janúar og til miðnættis.  Ferðatímabilið er til 31. janúar .

 

 

Allar nánari upplýsingar veitir:

Ingi Þór Guðmundsson

Forstöðumaður sölu- og markaðssviðs

Gsm  860 1201

3.1.2011Röng viðvörun frá farangurshólfi í flugi til Bergen

Stuttu fyrir lendingu á flugi Flugfélags Íslands til  Bergen í dag kom fram viðvörun um eld í fremra farangurshólfi vélarinnar. Samkvæmt vinnureglum sprautaði áhöfnin úr slökkvitæki í gegnum gat á hurð í farangurshólfi til að slökkva mögulegan eld. Töluverður viðbúnaður var síðan við lendingu í Bergen en þegar farangurshólfið var opnað kom í ljós að ekki hafði verið um eld að ræða heldur hafði nemi gefið frá sér röng skilaboð. Eftir lendingu var farþegum boðið uppá áfallahjálp en þeir höfðu einnig fengið góðar upplýsingar áður en lent var um hvað var að gerast. Flugvélin sem er af gerðinni Fokker 50 lenti í Bergen kl. 17.51 að staðartíma og voru 42 farþegar voru um borð ásamt 3 áhafnarmeðlimum.


Áætlað hafði verið að flugvélin færi með farþega frá Bergen í dag en af því verður ekki þar sem fara þarf yfir vélina áður en hún verður tekin í notkun aftur og munu farþegar gista á hóteli í Bergen í nótt en áætlað er að brottför frá Bergen verði seinnipartinn á morgun.

29.12.2010Samið um flug á austurströnd Grænlands

Fréttatilkynning frá Flugfélagi Íslands

 

Flugfélag Íslands og grænlensk stjórnvöld hafa undirritað samning til næstu tveggja ára um flug frá Reykjavík til Kulusuk og Constable Pynt á austurströnd Grænlands.

 

Flugfélag Íslands og grænlensk stjórnvöld hafa haft með sér samkomulag um flug á milli landanna undanfarin 5 ár og kemur þessi samningur í framhaldi af því. Flogið er tvisvar í viku allt árið um kring milli landanna og eru þessar samgöngur ákaflega mikilvægar fyrir byggðarfélögin og byggir stór hluti flutninga á aðföngum til þeirra á þeim.

 

Samningurinn skiptir að sama skapi töluverðu máli fyrir Flugfélag Íslands en velta á þessum tveimur árum í tengslum við þennan samning má áætla á um 500 milljónir króna.

27.12.2010Niðurstöður úr könnun meðal erlendra ferðamanna í sumar

Langflestir erlendir gestir sem koma til Íslands eru ánægðir með Íslandsferðina en 97% telja að hún hafi uppfyllt væntingar. Þetta er meðal niðurstaðna úr nokkrum spurningum sem Ferðamálastofa fékk Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF) til að leggja fyrir erlenda gesti á Íslandi sumarið 2010.


22.12.2010FÍ, GLV og Green Ice gáfu 100 börnum í Kus jólanammi

Flugfélag Íslands,  GLV í Kulusuk og Green Ice ehf sendu  100 börnum í Kulusuk jólanammi í vikunni.

 

Viðbrögðin voru mjög góð og börnin alsæl og nutu þess að fá íslensk jólanammi.

 

 

Jólanammi1Jólanammi2

17.12.2010OPNUNARTÍMI FLUGFRAKTAR Í DESEMBER 2010

Aðrir dagar hafa óbreyttan opnunartíma :

Mánudaga til föstudaga 07:00-18:00 og laugardaga 08:00-12:00

 


18.Des. Laugard         08:00 - 16:00

19.Des. Sunnud           11:00 - 16:00

22.Des. Miðvikud       07:00 - 19:00

23.Des. Þorláksm        07:00 - 19:00

24.Des. Aðfangad       07:00 - 12:00

31.Des. Gamlársd        07:00 - 12:00

17.12.2010Flug til Noregs millilendir á Egilsstöðum vegna flugverndarkrafna

Flug Flugfélags Íslands í næstu viku til Noregs mun á leið sinni frá Reykjavík til Noregs millilenda á Egilsstöðum vegna takmarkanna í samþykki Flugmálastjórnar um flugvernd á Reykjavíkurflugvelli.

 

Farþegar munu fara sem innanlandsfarþegar til Egilsstaða, þar verður framkvæmd skimun (vopnaleit) á farþegum og farangri áður en haldið er til Noregs.

 

Flug frá Noregi til Reykjavíkur mun hinsvegar vera án millilendinga og lenda beint á Reykjavíkurflugvelli.

 

Flugfélag Íslands biður farþega velvirðingar á þessum óþægindum og mun leitast við að millilendingin taki sem stystan tíma en áætla má að hún geti tekið um 40 mínútur.

13.12.2010Flugfélag Íslands kynnir nýjung, sjúkraflug í áætlunarflugi og byrjar salan mánudaginn 13. desember 2010.

Allar nánari upplýsingar má sjá á www.flugfelag.is

13.12.2010Erlendir ferðamenn í nóvember álíka margir og í fyrra

Samkvæmt frétt á vef Ferðamálastofu að þá voru erlendir ferðamenn í nóvember álíka margir og í fyrra.

 

Nánari upplýsingar er að finna á vef Ferðamálastofu

25.11.2010Flugfélag Íslands gerir samning við Grænlensku heimastjórnina

Flugfélag Íslands hefur í samstarfi við IcelandairHotels og Icelandair gert samning við Grænlensku heimastjórnina. Samningurinn er um kaup á sætum í áætlunarflug, frakt og leiguflug hjá Flugfélagi Íslands milli Grænlands og Íslands. Grænlenska heimastjórnin mun einnig kaupa viðeigandi þjónustur hjá IcelandairHotels og Icelandair. Allar stofnanir og fyrirtæki í eigu Grænlensku heimastjórnarinnar eru hluti af þessum samningi.

23.11.2010Góður árangur af ráðstefnu FÍ í Nuuk

Flugfélag Íslands hélt ráðstefnu  í síðustu viku í höfuðborg Grænlands sem er einn af áfangastöðum FÍ. Flugfélag Íslands vann að undirbúningi og framkvæmd ráðstefnunnar í samstarfi við Íslandsstofu.

28.10.2010Viðskiptatækifæri á Grænlandi

Flugfélag Íslands flýgur nú til Nuuk á Grænlandi allan ársins hring. Það gefur Íslendingum tækifæri til að efla samskipti, verslun og viðskipti við þessa góðu granna okkar í vestri. Grænlendingar hafa áhuga á að fá til sín ferska matvöru með flugi frá Íslandi, útivistarfatnað, varahluti, blóm o.fl.

14.10.2010Aukinn áhugi á vörum frá Íslandi til Grænlands

Grænlendingar á austur grænlandi ætla í auknu mæli að flytja vörur frá Íslandi til Grænlands.

 

Þetta hefur verið m.a. rætt í Grænlensku heimastjórninni og birtist þessi umræða í fjölmiðlum á Grænlandi(http://sermitsiaq.ag/politik/article131699.ece) og Íslandi(http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/10/14/islendingar_flytji_vorur_til_graenlands).

12.10.2010Flutningar 2010

Flugfélag Íslands tók þátt í fraktsýningunni FLUTNINGAR 2010. Flugfélag Íslands var að kynna nýjung á markaðnum - Jetpak hraðsendingar. Mikil ánægja var með þessa nýjung hjá sýningargestum með þessa nýjung í hraðsendingum á Íslanska markaðnum.

11.10.2010Fjöldi ferðamanna í september 2010

Alls fóru 40.863 erlendir gestir úr landi um Leifsstöð í septembermánuði nýliðnum. Um er að ræða 3,8% færri brottfarir erlendra gesta en í sama mánuði árið 2009 en einungis tvívegis áður hafa þó ferðamenn verið fleiri í september, eða árin 2008 og 2009.

 

Veruleg fjölgun er í brottförum Íslendinga.

7.10.2010Bleikur föstudagur

Bleikur föstudagur!

 

Október er mánuður bleiku slaufunnar og árvekniátaks gegn krabbameini hjá konum eins og flest okkar vita.  Nú eru fyrirtækin og fólkið í landinu hvatt til að sýna samstöðu og styðja árvekniátakið með því að hafa

"bleikan föstudag".


Starfsfólk Flugfélag Íslands tekur þátt í þessu frábæra framtaki og hefur gaman af - mættu í einhverju bleiku.  Um borð í vélum FÍ verða bleikar serviettur.  Merki bleiku slaufunnar mun einnig fylgja öllum tölvupóstsendingum frá FÍ í október.


Kíktu á frétt um málið á http://visir.is/bleikur-fostudagur/article/2010239078007


Starfsfólk FÍ tekur deginum létt og klæðist bleiku til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum!

7.10.2010Jóla og áramótaferðir til Noregs

Flugfélag Íslands mun fljúga milli Íslands og Noregs um jól og áramót. Flogið er frá Reykjavíkurflugvelli til Stavanger, Bergen og Þrándheims. Salan er þegar hafin á heimsíðu Flugfélags Íslands - flugfelag.is.

6.10.2010Fyrsta flutningasýning á Íslandi

Núna á fimmtudag 7. og föstudag 8. október verður haldin á Grand Hótel Reykjavík fyrsta alhliða flutningasýningin á Íslandi FLUTNINGAR 2010.

21.9.2010Kynning á íslenskum vörum í Nuuk

Flugfélag Íslands hefur nú hafið áætlunarflug til Nuuk allan ársins hring í stað sumaráætlunar eins og verið hefur undanfarin þrjú sumur.

Flugfélag Íslands flýgur til fimm áfangastaða á Grænlandi, til fjögurra þeirra allt árið til; Nuuk, Kulusuk og Ittoggortoormiit og Ilulissat (frá 19.apríl 2011) Sumaráætlun er á Narsarsuaq.

Nánari upplýsingar um Nuuk:  /afangastadir/nuuk.

Nuuk er höfuðstaður Grænlands, miðstöð stjórnsýslu og viðskipta þar í landi. Rætist nú baráttumál margra þar um að eiga kost á beinum samgöngum við Ísland sem gefa þeim mun fjölbreyttari möguleika  á ferðalögum hingað og/eða til annarra landa gegnum millilandaflug frá Keflavík. 

Þetta gefur okkur Íslendingum einnig gott tækifæri á að efla samskipti, verslun og viðskipti við þessa granna okkar í vestri.  Flugfélagi Íslands höfum orðið vör við mikin áhuga grænlenskra  á að eiga kost á ferskri matvöru með flugi frá Íslandi svo sem mjólkurvörum,  ávöxtum og grænmeti,  eggjum svo og ýmsu öðru svo sem blómum, útivistarfatnaði, varahlutum,  o. fl.  

Til að kynna þessar vörur hyggjumst við efna til ferðar til Nuuk fyrripart októbermánaðar og halda litla kynningu á íslenskum vörum,  þar sem við munum bjóða helstu aðilum í verslun og þjónustu til fundar við okkur.  

Áætlað er að fljúga út á mánudagskvöld  11. okt. Kynninginn verði síðdegis þann 12. okt. á Hótel Hans Egede.  Miðvikudagur og fimmtudagur verði svo nýttir til vettfangsferða og funda eftir atvikum en flogið er heim á fimmtudagskvöldi.  

Kostnaður vegna þáttöku er  Kr. 120.000.- pr/mann, innifalið flug m/sköttum,  hótelgisting á Hótel Hans Egede þrjár nætur og kynningaraðstaða.

Það er von okkar að með þessari kynningu þar í Nuuk nái þitt fyrirtæki strax ákveðnu forskoti inná þennan markað sem er að opnast með stöðugu frakt og farþegaflugi til Nuuk.

Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga á að vera aðili að þessari kynningu og senda fulltrúa til að kynna þær vörur sem þið viljið koma á framfæri að þá geta áhugasamir haft samband við Vigfús Vigfússon hjá  Flugfrakt Flugfélags Íslands í síma 570 3406 / 860 1209 eða vigfusv@flugfelag.is.

8.9.2010Fjöldi ferðamanna í ágúst

Alls fóru 89.600 erlendir gestir frá landinu í nýliðnum ágústmánuði um Leifsstöð eða um 2.500 færri en í ágúst árið 2009. Fækkunin nemur 2,7% millli ára. Mun fleiri Íslendingar eða 23% fleiri fóru utan í ágústmánuði í ár en í fyrra, voru 29.900 í ágúst síðastliðnum en 24.400 á síðasta ári.

2.9.2010Flugfélag Íslands hættir áætlunarflugi til Vestmannaeyja

Flugfélag Íslands hefur frá og með deginum í dag 3.ágúst hætt öllu reglubundnu áætlunarflugi til Vestmannaeyja.

2.9.2010Flugfélag íslands flýgur til Nuuk allt árið

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að hefja flug allt árið milli Reykjavíkur og Nuuk.

2.9.2010Fjöldi erlendra ferðamanna í júní

Brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð í júní voru 53.500, eitt þúsund færri en í júní á síðasta ári. Fækkunin nemur tveimur prósentum milli ára. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu, 8.500 færri en árinu áður, fækkunin nemur tæpum fimm prósentum milli ára, samkvæmt frétt frá Ferðamálastofu.

2.9.2010Markaðsátakið Inspired komið vel áleiðis - góður stígandi í komum ferðamanna til Íslands

Markaðsátakið Inspired by Iceland í samvinnu ferðaþjónustufyrirtækja, ríkisins og Reykjavíkurborgar er komið vel áleiðis samkvæmt upplýsingum í fréttabréfi Íslandsstofu.

2.9.2010Ný kaffitegund um borð

Í júní breytti FÍ um kaffitegund um borð. Það verður hætt við framleiðslu á núverandi kaffitegund sem FÍ býður upp á um borð í vélum og því varð að velja nýja góða bragðtegund.  Það var gerð bragð prufa á nokkrum kaffitegundum og kom nýja kaffitegundin mjög vel út. Nestle verður því  nýja kaffið um borð.

FÍ vonast til að nýja kaffið eigi eftir að bragast vel. Einnig verður áfram boðið upp á te,vatn og súkkulaðimola.

2.9.2010Inspired by Iceland myndbandið slær í gegn

Inspired by Iceland markaðsherferðin, sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum, náði nýjum hæðum í þjóðarátaki innanlands í síðustu viku sem bar heitið Þjóðin býður heim,samkvæmt fréttabréfi SAF.

2.9.2010Tæp 15 prósent fækkun erlendra gesta í maí

Um 28 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í maímánuði síðastliðnum samkvæmt brottfarartalningum Ferðamálastofu í Leifsstöð og er því um að ræða 19% fækkun frá því í maí á síðasta ári. Að meðtöldum 1.300 brottförum erlendra gesta um Akureyrarflugvöll nemur fækkun erlendra gesta 14,8% milli ára.

2.9.2010Þjóðin sendi myndband um allan heim

Þann 3. júní verður efnt til þjóðarátaks í tengslum við "Inspired by Iceland", markaðsátak ferðaþjónustunnar á erlendum mörkuðum  Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi  undir heitinu Þjóðin býður heim. Átakið minnir á að nú er einmitt  rétti tíminn til að heimsækja landið því það hafi aldrei verið eins lifandi og síbreytilegt.

2.9.2010Þjóðhátíðarflug komin í sölu hjá Flugfélagi Íslands

Þjóðhátíðarfargjaldið er kr. 11.000 aðra leið með sköttum og er bókanlegt á heimasíðu félagsins www.flugfelag.is

2.9.2010Námskeið við flughræðslu

FRELSI TIL FERÐA

-námskeið við flughræðslu

Kvíðameðferðarstöðin býður nú upp á  námskeið við flughræðslu í samstarfi við Flugfélag Íslands. 

Á námskeiðinu verða kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að draga úr hræðslu tengdri flugferðum með það að marki að fólk eigi hægar um vik að ferðast.

2.9.2010Erlendum gestum í febrúar fjölgaði um 2 þúsund

Um 20 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum, tvö þúsund fleiri en í febrúar árið 2009. Þannig komu álíka margir í febrúar í ár og árið 2008 sem var þá fjölmennasti febrúarmánuður frá upphafi talninga í Leifsstöð.

2.9.2010Fjöldi ferðamanna árið 2009

Heildarfjöldi ferðamanna til Íslands um Leifsstöð árið 2009 voru 464.536 miðað við 472.662 árið 2008. Fækkun um Leifsstöð er því 1,7%.

2.9.2010Ferðalög Íslendinga um eigið land árið 2009

Mánudaginn 15.febrúar 2010 voru kynntar niðurstöður úr könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga um eigið land árið 2009.

Samkvæmt niðurstöðunum þá ferðuðust um 90% Íslendinga um landið á árinu. Mikill meirihluti þeirra sem ferðaðist fóru í fleiri en 2 ferðir á árinu.

Spurt var um fjölmörg atriði og m.a.: Hvaða afþreyingu greiddir þú fyrir á ferð þinni um Ísland?

Ekki kemur á óvart að sund er þar efst á blaði enda mest sótta afþreying um allt land. Golf er í fimmta sæti þegar spurt er um afþreyingu sem greitt er fyrir, en 12,4% Íslendinga á ferðalagi árið 2009 segjast hafa greitt fyrir golf í ferðinni.

Sund                        65,9 %
Söfn                         32,9 %
Veiði                        19.0 %
Leikhús                    18,0 %
Golf                         12,4 %
Bátsferð                   10,2 %
Hestaferð                    2,9%
Flúðasigling                 2,3 %
Hvalaskoðun               2,0 %

2.9.2010Eyrarrósin afhent á Bessastöðum mánudaginn 15.02.2010

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.

2.9.2010Gífurlegur áhugi á Klinktilboði

Í morgun kl. 10:00 bauð Flugfélag Íslands 500 sæti á nettilboði fyrir aðeins kr. 2990 aðra leið innanlands og er óhætt að segja að viðtökur hafi verið góðar.

2.9.2010Flugfélag Íslands tilnefnt sem Besta markaðsherferðin á netinu 2009

Flugfélag Íslands hefur verið tilnefnt sem "Besta markaðsherferðin á netinu 2009" af  Samtök vefiðnaðarins (SVEF - www.svef.is).

Er það fyrir Skemmtum okkur innanlands herferðina sem inniheldur flug+hótel fyrir íslendinga sem ferðast innanlands. Starfsfólk Flugfélags Íslands er stolt af þessari tilnefningu.

Íslensku Vefverðlaunin verða afhent í níunda skipti þann 12. febrúar næstkomandi í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, af Iðnaðarráðherra, Katrínu Júlíusdóttir.

2.9.2010Flugvél lendir í mikilli ókyrrð

Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Ísafirði, eftir að hafa hætt við lendingu þar, lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var uppúr Skutulsfirðinum

2.9.2010375.000 farþegar hjá Flugfélagi Íslands árið 2009

Fjöldi farþega Flugfélags Íslands var um 375.000 farþegar á árinu 2009 sem er samdráttur uppá um 11% frá fyrra ári. Fjöldi farþega í innanlandsflugi var um 350.000 og dróst saman um 12% en fjöldi farþega í millilandaflugi var um 25.000 sem er 12% aukning frá fyrra ári.

2.9.2010Flug milli Vestmannaeyja og Reykjavík

Flugfélag Íslands og Vegagerðin hafa gert með sér samkomulag um framlengingu á flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík. Gildir samningurinn til 31.júlí 2010. Samkvæmt óbreyttu mun Flugfélag Íslands hætta reglubundnu áætlunar flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík eftir þann tíma. Flugfélag Íslands mun hins vegar setja inn auka flug vegna Þjóðhátíðar 2010 og fljúga til þriðjudagskvölds 3.ágúst til að þjónusta þjóðhátíðargesti.

 

Samkvæmt samkomulaginu verður flogið tvisvar á dag milli Vestmannaeyja og Reykjavík frá og með 1.janúar 2010.

 

Undanfarin ár, eftir að Flugfélag Íslands hóf aftur flug milli Vestmannaeyja og Reykjavík, hefur orðið góð aukning í fjölda farþega og þá sérstaklega í meiri ferðatíðni Vestmannaeyinga og aukningu ferðamanna.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára