English  Dansk
Forsíða
20. júní 2011 Breytingar hjá Netklúbbi Flugfélags Íslands

Við breytum til og aukum sætaframboð nettilboða

Flugfélag Íslands hefur fundið fyrir áhuga netklúbbsfélaga um aukið sætaframboð á nettilboðum. Þar sem Flugfélag Íslands er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki höfum við ákveðið að bregðast við þessu með því að breyta fyrirkomulagi útsendinga á nettilboðum. Í stað þess að senda út nettilboð á mánudögum munu ný nettilboð uppfærast á hverjum degi með tíu mínútna millibili sem nú verða bókanleg 7 til 14 daga fram í tímann. Frá og með deginum í dag 20.júní verður tölvupóstur til netklúbbsfélaga sendur út mjög óreglulega. Því verða netklúbbsfélagar sjálfir að fylgjast vel með tilboðum beint á heimasíðu Flugfélags Íslands www.flugfelag.is í gluggaboxi sem er efst vinstra megin á heimasíðunni.

 

Nýtt nettilboðsbox

 



Með þessu er Flugfélag Íslands að auka framboð nettilboða verulega þannig að nettilboð verða í boði alla daga vikunnar. Nettilboð stýrast eins og alltaf af framboð og eftirspurn. Er það von Flugfélags Íslands að þessi breyting komi öllum viðskiptavinum til góða.

Virðingarfyllst,

Starfsfólk Flugfélags Íslands

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára