English  Dansk
Forsíða
2. september 2010 Erlendum gestum í febrúar fjölgaði um 2 þúsund

Um 20 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum, tvö þúsund fleiri en í febrúar árið 2009. Þannig komu álíka margir í febrúar í ár og árið 2008 sem var þá fjölmennasti febrúarmánuður frá upphafi talninga í Leifsstöð.

 

Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega aukningu frá þeim öllum nema Norðurlöndunum. Þannig fjölgaði Bretum og Bandaríkjamönnum um fjórðung, 16% aukning var frá Mið- og Suður Evrópu og 11% aukning frá öðrum löndum en talningar ná til og fjarmörkuðum.


Frá áramótum hafa tæplega fjörutíu þúsund erlendir gestir farið frá landinu eða um tvö prósent fleiri en í janúar og febrúar á síðasta ári. Mest hefur aukningin orðið frá Bretlandi eða um 19 prósent.

Skiptingu milli landa, talnaefni/fjöldi ferðamanna og allar nánari upplýsingar er að finna á : http://www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=683&module_id=220&element_id=5482

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára