English  Dansk
Forsíða
8. september 2010 Fjöldi ferðamanna í ágúst

Alls fóru 89.600 erlendir gestir frá landinu í nýliðnum ágústmánuði um Leifsstöð eða um 2.500 færri en í ágúst árið 2009. Fækkunin nemur 2,7% millli ára. Mun fleiri Íslendingar eða 23% fleiri fóru utan í ágústmánuði í ár en í fyrra, voru 29.900 í ágúst síðastliðnum en 24.400 á síðasta ári.

 

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá nokkra aukningu frá Norður-Ameríku eða um 13,2%. Norðurlandabúum fjölgar lítilsháttar eða um 2,5% og munar þar mestu um 16% aukningu Norðmanna. Mið- og S-Evrópubúum fækkar um tæp 7% en þar munar mestu um fækkun Ítala, Spánverja og Hollendinga, svipaður fjöldi kemur frá Þýskalandi og Sviss og fleiri Frakkar koma í ár en í fyrra. Bretum fækkar um 11,4% og gestum frá löndum sem flokkast undir ,,Annað " um 2,7%

 

Sjá nánar á heimasíðu Ferðamálastofu

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára