English  Dansk
Forsíða
11. október 2010 Fjöldi ferðamanna í september 2010

Alls fóru 40.863 erlendir gestir úr landi um Leifsstöð í septembermánuði nýliðnum. Um er að ræða 3,8% færri brottfarir erlendra gesta en í sama mánuði árið 2009 en einungis tvívegis áður hafa þó ferðamenn verið fleiri í september, eða árin 2008 og 2009.

 

Veruleg fjölgun er í brottförum Íslendinga.

 

Fjölgun frá Norður-Ameríku

 

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega fjölgun frá Norður-Ameríku (+22,6%) og nokkra fjölgun frá löndum innan og utan Evrópu sem eru flokkuð saman undir "Annað" (+7,1%).

 

Bretum fækkar hins vegar umtalsvert eða um 22,6%, gestum frá Mið- og Suður Evrópu um 13,9% og Norðurlandabúum um 6,2%

 

Gestir frá áramótum

 

Frá áramótum hafa 385.100 erlendir gestir farið frá landinu eða 10.400 færri en á sama tímabili árinu áður.

 

Fækkunin nemur 2,6% milli ára. Fækkun hefur verið frá öllum mörkuðum nema Norður Ameríku en þaðan hefur verið fjölgun upp á 13,5%.

 

Lesa meira

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára