English  Dansk
Forsíða
2. september 2010 Flugfélag íslands flýgur til Nuuk allt árið

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að hefja flug allt árið milli Reykjavíkur og Nuuk.

 

Flugfélag Íslands hóf flug milli Íslands og Nuuk sumarið 2007 og hefur síðan þá flogiðþangað á sumrin. Eftirspurn hefur verið mikil hjá Grænlendingum, Dönum og öðrum erlendum ferðamönnum. Í framhaldi af þessum góða árangri hefur Flugfélag Íslands nú ákveðið að hefja flug allt árið milli Reykjavíkur og Nuuk.

Þessi ákvörðun kemur í beinu framhaldi af þeim góða árangri sem Flugfélag Íslands hefur náð í að fjölga farþegum á milli Íslands og Grænlands með því að bjóða nýja áfangastaði þar og fjölga ferðum. Af fimm áfangastöðum á Grænlandi verður Flugfélag Íslands því með heilsársflug til þriggja af þessum stöðum, þ.e. Kulusuk, Constable Pynt og Nuuk. Farþegar með áætlunarflugi Flugfélagi Íslands milli Íslands og Grænlands voru um 25 þúsund a siðasta ári. Flugfélag Íslands flýgur allt að sex áætlunarferðir á dag yfir háannatímann í sumar frá Reykjavíkurflugvelli til Grænlands.

 

Í fyrstu verður lagt er upp með að fljúga tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum, frá Reykjavík og verður um kvöld/næturflug að ræða til þess að ná að tengjast við önnur millilandaflug til og frá Íslandi til Evrópu og Ameríku. Flugtímarnir eru eftirfarandi (staðartímar):

 

Brottför frá Reykjavík kl. 19:45

Koma til Nuuk kl. 20:00

Brottför frá Nuuk kl. 22:15

Koma til Reykjavíkur 04:30

 

Það liggja margvísleg tækifæri í þessu fyrir íslensk fyrirtæki eins og verktakafyrirtæki sem hafa verið með ágætis starfssemi í Nuuk og öðrum bæjum á Grænlandi. Grænlendingar hafa einnig haft áhuga á að sækja í meira mæli í heilbrigðisþjónustu til Íslands. Grænlendingar hafa einnig keypt meira og meira af vörum frá Íslandi, eins og ávöxtum, grænmeti, mjólkurvörum, varahlutum, blómum og tímaritum. Þessi aukna áætlun mun hjálpa við að auka viðskipti milli Íslands og Grænlands enn frekar.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára