English  Dansk
Forsíða
26. janúar 2012 Flugfrelsi fyrir 16 ára og eldri

Flugfélag Íslands býður upp á nýjan kost fyrir fólk sem er mikið á ferðinni innanlands. Flugfrelsi kallast þessi nýja vara en í því felst að keyptir eru sex flugleggir en kortin virka svipað og klippikort. Nýjungin leggst vel í viðskiptavini sem margir hverjir hafa nýtt sér þetta nýja tækifæri.

Flugfrelsi heitir ný og spennandi vara sem Flugfélag Íslands hefur hafið sölu á. "Um er að ræða nokkurs konar klippikort sem hentar vel þeim sem eru mikið á ferðinni innanlands," útskýrir Eva Björk Guðjónsdóttir, deildarstjóri þjónustuvers Flugfélags Íslands.

 

Eva Björk  Flugfrelsi er ætlað fólki sextán ára og eldra. Þá eru keyptir sex flugleggir á sérstöku tilboðsverði en Flugfrelsi kostar 64.500 krónur sem gera 10.750 krónur fyrir hvern fluglegg. "Þá eru skilmálar Flugfrelsisins einnig mjög góðir. Til dæmis er enginn bókunarfyrirvari og farið er endurgreitt að fullu ef afbókað er og látið vita fyrir brottför," útskýrir Eva Björk.

Hún útskýrir að Flugfrelsiskortin virki svipað og klippikort. "Þegar kortið er keypt fær kaupandinn númer kortsins og það númer er gefið upp þegar flug er bókað og það flug svo dregið af inneign á kortinu," lýsir hún.

Eva Björk segir sölu Flugfrelsisins fara vel af stað og því ljóst að þessi nýjung leggst vel í viðskiptavini Flugfélags Íslands. "Við höfum líka ákveðið að bjóða upp á Flugfrelsi á tilboðsverði út janúar," segir Eva Björk en á tilboðinu kostar Flugfrelsiskortið 59.850 krónur, eða 9.975 krónur flugleggurinn.

Afsláttarkjör fyrir börn og unglinga

Flugfrelsi er byggt á eldri vöru sem hefur verið í boði hjá Flugfélagi Íslands. Flugfélag Íslands hefur til dæmis síðan 2005 boðiðafsláttarkjör fyrir börn sem fljúga reglulega ein á milli landshluta. "Við köllum þessa krakka Flugkappa," segir Eva Björk glaðlega. Afslátturinn fæst með því að foreldrar eða forráðamenn kaupa kort með tíu flugleggjum á afsláttarkjörum. "Þessi kort eru mjög vinsæl og eru Flugkapparnir orðnir margir."

Árið 2008 bætti Flugfélag Íslands síðan við nýrri vöru, SMU (sem þýðir: súper mikilvægur unglingur) sem er inneignarkort með sex flugleggjum. "SMU er ætlað fyrir tólf til sextán ára unglinga. Börnin verða unglingar og unglingarnir verða fullorðnir og fljótlega fór Flugfélag Íslands að fá fyrirspurnir um sambærileg afsláttarkjör fyrir fullorðna fólkið og þá varð Flugfrelsi til," segir Eva Björk og er ánægð með frábærar viðtökur.

Hægt er að kaupa og fá allar upplýsingar um Flugfrelsi á heimasíðu Flugfélags Íslands.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára