English  Dansk
Forsíða
6. október 2010 Fyrsta flutningasýning á Íslandi

Núna á fimmtudag 7. og föstudag 8. október verður haldin á Grand Hótel Reykjavík fyrsta alhliða flutningasýningin á Íslandi FLUTNINGAR 2010.

Hér kynna fyrirtæki á flutningasviði allt það nýjasta á sviði sjó-, land- og loftflutninga og auk þess m. a. vörustjórnun og lagerhald. Undirbúningur að sýningunni FLUTNINGAR 2010 hefur staðið yfir um nokkurt skeið en aðilar innan flutningageirans töldu þörf fyrir slíka alhliða sýningu því flutningageirinn er ótrúlega stór og lítt sýnilegur miðað við mikilvægi. Flutningskostnaður er gjarnan stór hluti af vöruverði á Íslandi og eftir miklu að slægjast að lækka þann kostnað.
Á sýningunni FLUTNINGAR 2010 verður líka fyrirlestradagskrá þar sem verður rætt um; þróun flutninga til og frá Íslandi á undanförnum árum og hvaða áhrif magnbreytingar hafa á flutningamarkaðinn, kynning á tolla og flutningakerfi og gagnaöryggi og skoðuð flotastýring og eftirlit, rekjanleiki og gagnsæi svo eitthvað sé nefnt. Það er frítt inn á sýninguna og fyrirlestra. Framkvæmdastjóri sýningarinnar FLUTNINGAR 2010 er Ólafur M. Jóhannesson.

 

Sjá auglýsingu

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára