English  Dansk
Forsíða
23. nóvember 2010 Góður árangur af ráðstefnu FÍ í Nuuk

Flugfélag Íslands hélt ráðstefnu  í síðustu viku í höfuðborg Grænlands sem er einn af áfangastöðum FÍ. Flugfélag Íslands vann að undirbúningi og framkvæmd ráðstefnunnar í samstarfi við Íslandsstofu.

Þátttaka íslenskra fyrirtækja fór langt fram úr björtustu vonum og var m.a. einni brottför bætt við og komust færri að en vildu. Þau fyrirtæki sem fóru til Nuuk sögðust mjög ánægð með árangurinn sem náðist af þessari ráðstefnu. Það var mikill áhugi grænlenskra fyrirtækja á samstarfi og erum nú þegar einhverjir farnir að fá viðskipti. Markmið FÍ var að gera bæði Flugfélag Íslands meira áberandi sem flugfélag inn og út úr Nuuk, bæði hvað varðar frakt og farþega.

 

Þessi ráðstefna hefur einnig fengið góða umfjöllun í grænlenskum fjölmiðlum og gott dæmi um umfjöllunina er að finna í ríkissjónvarpi grænlendinga - KNR. www.knr.gl/index.php?id=1846 ( www.knr.gl og ýta svo á Qanorooq(TV-news). Sjá fréttir frá eftirfarandi dagsetningum: 16th, 17th . 18th, 19th

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára