English  Dansk
Forsíða
2. september 2010 Inspired by Iceland myndbandið slær í gegn

Inspired by Iceland markaðsherferðin, sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum, náði nýjum hæðum í þjóðarátaki innanlands í síðustu viku sem bar heitið Þjóðin býður heim,samkvæmt fréttabréfi SAF.

 

Þar var íslenskur almenningur hvattur til að senda vinum, fjölskyldu og viðskiptafélögum erlendis fjörugt og glettið myndband sem ætlað er að veita fólki innblástur og hvetja til ferðalaga til Íslands. Óhætt er að fullyrða að myndbandið hafi slegið í gegn í þessu einstaka átaki. 

Tvær og hálf milljónir manna hafa nú hlaðið niður niður Inspired by Iceland, frá því átakið hófst síðastliðinn fimmtudag. Þar hafa 2,2 milljónir hlaðið niður kynningarmyndbandinu þar sem undir hljómar lag Emelíönu Torrini, Jungle Drum.  Um fimm milljón Twitter skilaboða voru send en þar vógu þyngst sendingar sem Björk og Yoko Ono áttu heiðurinn af. Að auki hafði Inspired by Iceland Facebook-síðan eignast 17 þúsund vini. Ljóst er að þessi fjöldi mun aukast  þegar fleiri og fleiri viðtakendur munu opna póstinn sinn og póstsendingar halda áfram því að umfjöllun um átakið erlendis er að skila sér.

Ljóst er að mikill áhugi er erlendis fyrir átakinu en um það bil 125 mikilvægir bloggarar hafa fjallað um það þ.m.t. Josh Spear sem talinn er ein mikilvægasta röddin á netinu skv. New York Times. Umfjöllun um þjóðarátakið sjálft var síðan birt víða í miðlum í Evrópu, Ástralíu og Bandaríkjunum í síðustu viku.

Framundan eru áframhaldandi póstsendingar, birtingar auglýsinga í erlendum blöðum og vefmiðlum, einnig blaðamannaheimsóknir og hvatning til erlendra ferðamanna sem komnir eru til landsins til þess að deila ferðasögum sínum á vefnum ásamt tónlistarviðburði seinna í sumar undir formerkjum Inspired by Iceland.

Aðstandendur átaksins eru að vonum ánægðir með hvernig til tókst og þakka frábærar viðtökur íslensku þjóðarinnar og vonast til þess að fólk haldi áfram að senda þó að þjóðarátaksdeginum sé formlega lokið.

Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að áhorf vefmyndavélanna sé orðið meira en á vefmyndavélunum sem sýndu myndir af Eyjafjallajökli þegar gosið stóð sem hæst, en þær vöktu þó mikla athygli. Seinni part gærdagsins um þrjúleytið voru rúmlega 1000 manns að skoða vefmyndavélar á vefsíðunni en langflestir þeirra vor útlendingar. Átakið virðist því ganga vel í netverja ef marka má þessar tölur.

Að markaðsátakinu Inspired by Iceland standa iðnaðarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Útflutningsráð, Samtök ferðaþjónustunnar (tæplega 80 fyrirtæki), Icelandair og Iceland Express.

Sjá tengil á www.inspiredbyiceland.com

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára