English  Dansk
Forsíða
21. september 2010 Kynning á íslenskum vörum í Nuuk

Flugfélag Íslands hefur nú hafið áætlunarflug til Nuuk allan ársins hring í stað sumaráætlunar eins og verið hefur undanfarin þrjú sumur.

Flugfélag Íslands flýgur til fimm áfangastaða á Grænlandi, til fjögurra þeirra allt árið til; Nuuk, Kulusuk og Ittoggortoormiit og Ilulissat (frá 19.apríl 2011) Sumaráætlun er á Narsarsuaq.

Nánari upplýsingar um Nuuk:  /afangastadir/nuuk.

Nuuk er höfuðstaður Grænlands, miðstöð stjórnsýslu og viðskipta þar í landi. Rætist nú baráttumál margra þar um að eiga kost á beinum samgöngum við Ísland sem gefa þeim mun fjölbreyttari möguleika  á ferðalögum hingað og/eða til annarra landa gegnum millilandaflug frá Keflavík. 

Þetta gefur okkur Íslendingum einnig gott tækifæri á að efla samskipti, verslun og viðskipti við þessa granna okkar í vestri.  Flugfélagi Íslands höfum orðið vör við mikin áhuga grænlenskra  á að eiga kost á ferskri matvöru með flugi frá Íslandi svo sem mjólkurvörum,  ávöxtum og grænmeti,  eggjum svo og ýmsu öðru svo sem blómum, útivistarfatnaði, varahlutum,  o. fl.  

Til að kynna þessar vörur hyggjumst við efna til ferðar til Nuuk fyrripart októbermánaðar og halda litla kynningu á íslenskum vörum,  þar sem við munum bjóða helstu aðilum í verslun og þjónustu til fundar við okkur.  

Áætlað er að fljúga út á mánudagskvöld  11. okt. Kynninginn verði síðdegis þann 12. okt. á Hótel Hans Egede.  Miðvikudagur og fimmtudagur verði svo nýttir til vettfangsferða og funda eftir atvikum en flogið er heim á fimmtudagskvöldi.  

Kostnaður vegna þáttöku er  Kr. 120.000.- pr/mann, innifalið flug m/sköttum,  hótelgisting á Hótel Hans Egede þrjár nætur og kynningaraðstaða.

Það er von okkar að með þessari kynningu þar í Nuuk nái þitt fyrirtæki strax ákveðnu forskoti inná þennan markað sem er að opnast með stöðugu frakt og farþegaflugi til Nuuk.

Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga á að vera aðili að þessari kynningu og senda fulltrúa til að kynna þær vörur sem þið viljið koma á framfæri að þá geta áhugasamir haft samband við Vigfús Vigfússon hjá  Flugfrakt Flugfélags Íslands í síma 570 3406 / 860 1209 eða vigfusv@flugfelag.is.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára