English  Dansk
Forsíða
13. maí 2011 Langfjölmennasti aprílmánuður frá upphafi

Langfjölmennasti aprílmánuður frá upphafi


Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 34.333 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í apríl síðastliðnum en þeir hafa aldrei áður farið yfir 30 þúsund í aprílmánuði.

 

Fjölgun í apríl um 34% milli ára
Um er að ræða 40% aukningu um Keflavíkurflugvöll frá því í apríl á síðasta ári. Gosið í Eyjafjallajökli hafði veruleg áhrif á fjölda ferðamanna í apríl í fyrra og eru þar af leiðandi sveiflur miklar í tölunum á milli ára. Um 1.000 erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Akureyrarflugvöll í aprílmánuði í fyrra, þar sem millilandaflug fluttist um tíma til Akureyrar vegna gossins. Raunfjölgun erlendra ferðamanna nemur því um 34% milli ára. Fjölmennustu aprílmánuðir til þessa voru 2007 og 2009 þegar erlendir ferðamenn voru rétt innan við 28 þúsund.

 

Bretar fimmtungur ferðamanna
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í apríl frá Bretlandi eða um fimmtungur ferðamanna (20,8%), einn af hverjum tíu (10,3%) frá Bandaríkjunum  og svipaður fjöldi frá Danmörku (9,8%) og Noregi (9,3%).

Alls hafa 104 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 15.500 fleiri ferðamenn en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 17,5% milli ára. Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá öllum mörkuðum, langmest hefur hún þó verið frá N-Ameríku eða 44%, þar næst kemur Mið- og Suður Evrópa með 27,8% aukningu og í þriðja sæti eru Norðurlöndin með um 17% aukningu. Aukning frá Bretlandi mælist minni eða tæp 8% og tæp 4% frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir ,,annað".

 

Brottfarir Íslendinga
Brottförum Íslendinga fjölgaði um 50% í apríl frá því í fyrra, voru 29 þúsund í ár en 19 þúsund í fyrra. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um fimmtung í samanburði við sama tímabil árið 2009.

 

http://www.ferdamalastofa.is/Category.mvc/DisplayElement?catid=747&moduleid=220&sid=7096

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára