English  Dansk
Forsíða
2. september 2010 Námskeið við flughræðslu

FRELSI TIL FERÐA

-námskeið við flughræðslu

Kvíðameðferðarstöðin býður nú upp á  námskeið við flughræðslu í samstarfi við Flugfélag Íslands. 

Á námskeiðinu verða kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að draga úr hræðslu tengdri flugferðum með það að marki að fólk eigi hægar um vik að ferðast.

 

Stjórnendur námskeiðsins eru Gunnar Guðjónsson flugstjóri, dr. Eiríkur Örn Arnarson og sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar.


Námskeiðið hefst mánudaginn 10. maí 2010 og stendur yfir í 4 vikur, 1x í viku í 3 klst í senn. 

Skráning fer fram hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534-0110/822-0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is en skráningu lýkur fimmtudaginn 6. maí n.k.

 

Dagsskrá námskeiðs:

Mánudagur 10 . maí kl 18:00-21:00
Fræðsla sálfræðinga um fælni, óttaviðbragðið og þætti sem viðhalda flughræðslu.  Flughræðsla hvers og eins kortlögð.  Jafnframt veitir flugstjóri fræðslu um flugeðlisfræði.  Slökun kynnt til sögunnar. 

Mánudagur 17. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um flugeðlisfræði.  Sálfræðingar fjalla ítarlega um þátt hugarfars og hvernig megi hafa áhrif þar á. Farið í vettvangsferð þar sem veitt er innsýn í stjórnklefa og tækjabúnað flugvéla.

Fimmtudagur 20. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um flugveður, þjálfun flugáhafnar og viðhald flugvéla. Fræðsla sálfræðinga um leiðir til að takast á við óttann.  Vettvangsferð.

Mánudagur 31. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um viðhald flugvéla. Samantekt, bakslagsvarnir og lokaundirbúningur.

Að lokum:  Flugferð til einhvers áfangastaðar Flugfélags Íslands innanlands.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára