English  Dansk
Forsíða
21. október 2011 Stærsti dagur ársins

Alls eiga um 1700 manns bókað farm eð vélum Flugfélags Íslands í dag ! "Okkur virðist sem þetta ætli að verða stærsti dagur ársins. Þetta er langt yfir öllu meðaltali," segir Ingi Þór Guðmundsson forstöðumaður sölu- og markaðssviðs FÍ

 Venju samkvæmt fóru fyrstu vélar FÍ í loftið laust upp úr klukkan sjö í morgun og þær síðustu koma inn til lendingar síðla kvölds. Alls eru 38 innanlandsferðir á áætlun í dag; það er frá til og frá Reykjavík. Akureyri er sem endranær fjölsóttasti áfangastaðurinn en þangað fljúga alls ellefu vélar í dag. Þrjá vélar fara á Ísafjörð og fimm á Egilsstaði.

 "Þetta er eins og góð verslunarmannahelgi," segir Ingi Þór Guðmundsson.

 Ástæða þess hve margir eru á faraldsfæti í dag, segja Flugfélagsmenn meðal annars þá að nú - beggja vegna helgarinnar - séu haustfrí í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Mörgum þyki þá einmitt upplagt að bregða undir sig betri fætinum og fara í nokkurri daga í frí úti á landi. Í næstu viku sé svo von á hundruðum nemenda úr breskum unglingaskólum hingað og muni þeir í framhaldinu fara í ferðir vítt og breitt um landið.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára