English  Dansk
Forsíða
2. september 2010 Þjóðhátíðarflug komin í sölu hjá Flugfélagi Íslands

Þjóðhátíðarfargjaldið er kr. 11.000 aðra leið með sköttum og er bókanlegt á heimasíðu félagsins www.flugfelag.is

 

Flug á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er komið í sölu hjá Flugfélagi Íslands. Á síðasta ári flutti Flugfélagið yfir 2000 manns til og frá Vestmannaeyjum dagana í kringum Þjóðhátíð og búast má við svipuðum fjölda þetta sumarið. Mest er flogið frá fimmtudegi til mánudags yfir Verslunarmannahelgina en á síðasta ári var algjört met slegið á mánudeginum í flugi milli lands og eyja en þá flaug Flugfélag Íslands 25 ferðir fram og til baka.

 

Þjóðhátíðarfargjaldið er kr. 11.000 aðra leið með sköttum og er bókanlegt á heimasíðu félagsins www.flugfelag.is

 

Nú þegar hafa verið settar upp nokkrar aukaferðir.

 

Almennt má segja að landinn ætli að skemmta sér innanlands í sumar, mikið hefur verið bókað í flug í kringum hinar ýmsu hátíðir sem haldnar eru um allt land. Gildir þá einu hvort um er að ræða menningarviðburði af ýmsu tagi, íþróttamót eða annarskonar skemmtun.


Flugfélag Íslands óskar landsmönnum öllum góðs ferðasumars

 

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára