English  Dansk
Forsíða
14. febrúar 2012 Um 27000 Íslendingar kaupa golf á ferð um Ísland sumarið 2011 Flugfélag Íslands er meðliðum að Golf Iceland. Er markmiðið að auka fjölda innlendra sem erlendra ferðamanna á golfí sem afþreyingu á Íslandi

Samkvæmt niðurstöðum könnunar Ferðamálastofu meðal innlendra ferðamanna árið 2011 þá segjast 90% Íslendinga eldri en 18 ára hafa ferðast um Ísland og 12,7% þeirra hafa keypt sér golf á ferðalagi um Ísland. Ekki er spurt hve marga hringi, en gera má ráð fyrir að flestir kaupi fleiri en einn hring og margir mun fleiri.

12,7% þeirra sem ferðast og eru eldri en 18 ára eru nálægt 27.000. Golfið er orðin ein mest keypta afþreying á ferðalögum Íslendinga.Hlutfall þeirra sem kaupa afþreyingu almennt lækkar á milli áranna 2010 og 2011. Þannig sögðust 14,1% hafa keypt golfhring 2010.

Það er munur á kynjum þegar spurt er um golf. 16,2 % allra karla sem voru á ferð um Ísland á síðasta ári keypti golfhring, en 9,2 % kvenna. Í lokin má leika sér með tölur og gera ráð fyrir að þessi hópur hafi að meðaltali keypt tvo hringi hver og greitt að meðaltali 3000 kr fyrir hringinn þá hafa Íslendingar greitt í vallargjöld utan heimaklúbbs sumarið 2011 um 160 milljónir króna.

<<Til baka
Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára